Steinn Ármann Magnússon, leikari, andaðist að heimili sínu í Hafnarfirði 21. ágúst 2026 síðastliðinn, á 62. aldursári.Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðstandendum.Steinn lauk námi frá Leiklistarskóla Íslands árið 1989. Hann vakti fyrst athygli á tíunda áratugnum sem annar helmingur Radíusbræðra, sem segja má að hafi rutt íslensku uppistandi braut á sínum tíma.Hann lék jafnframt á bassa með hljómsveitinni Kátum piltum frá Hafnarfirði.
Steinn Ármann er látinn