Stefán Einar Stefánsson fjölmiðlamaður gagnrýnir ummæli Silju Sóleyjar Birgisdóttur, oddvita Sósíalistaflokksins í Reykjavík, þar sem hún sagði í samtali við mbl.is að „fólk sé hrætt við Miðflokkinn“ og lýsi verulegum áhyggjum af mögulegu samstarfi flokksins við Sjálfstæðisflokkinn í borginni.
Í færslu sem Stefán birti á Facebook segir hann að slíkt orðalag sé bæði ósanngjarnt og hættulegt.
„Þetta er einfaldlega gengið út yfir allan þjófabálk svo að það sé bara sagt. Það jaðrar við hatursorðræðu að draga upp slíka mynd af samborgurum sínum að fólki stafi hætta af þeim, án þess að nokkur rök hnígi að því,“ skrifar hann.
Segir ekkert í stefnu flokksins ógna fólki
Stefán segir að þótt Miðflokkurinn hafi tekið afstöðu gegn því að hinseginfáninn sé á öllum fánastöngum í skólakerfinu eða gagnrýnt Borgarlínu, þá sé ekkert í stefnu flokksins sem réttlæti að fólk upplifi ótta.
„Þótt Miðflokkurinn sé á móti því að hinseginfáni sé á öllum fánastöngum skólakerfisins eða tali gegn glórulausri borgarlínu þá er ekkert í stefnu flokksins sem ógnar öryggi fólks, hvorki samkynhneigðra, hörundsdökkra né mín,“ skrifar hann.
Hann segir jafnframt að slíkur málflutningur sé tilraun til að jaðarsetja pólitíska andstæðinga.
„Þetta er í raun mjög lúaleg aðferð til að jaðarsetja pólitíska andstæðinga, næstum jafn lúaleg og að draga menn fyrir Landsdóm.“
Ber saman við stefnu Sósíalista
Í færslunni gerir Stefán samanburð við Sósíalistaflokkinn og spyr hvort hægrimenn hefðu átt að lýsa yfir sambærilegum ótta þegar Sanna Magdalena Mörtudóttir komst til valda í borgarstjórn.
„Hefðu hægrimenn átt að lýsa yfir alvarlegum ótta þegar Sanna Magdalena komst í meirihluta í borginni? Sú stefna sem hún talar fyrir hefur kostað tugi milljóna manna lífið? Er ástæða til að óttast að Gúlagið verði sett á fót aftur og þá jafnvel á Raufarhöfn?“ skrifar hann.
Ummæli Silju birtust á mbl.is þar sem hún ræddi mögulegt meirihlutasamstarf í Reykjavík eftir kosningar. Þar sagðist hún telja Framsókn og Viðreisn mun betri samstarfskosti fyrir Sjálfstæðisflokkinn en Miðflokkinn, meðal annars vegna þess að „fólk er hrætt við Miðflokkinn“.