Stefán Einar Stefánsson, blaðamaður og umsjónarmaður Spursmála á mbl.is, gagnrýnir Guðrúnu Karls Helgudóttur, biskup Íslands, harðlega vegna viðbragða hennar við heimsókn umdeilds pakistansks trúarleiðtoga til Íslands.Hann segir viðbrögðin í meira lagi undarleg og sakar biskup um tvískinnung þegar kemur að því að fordæma öfgafulla umræðu.Tilefnið er fréttaflutningur þess efnis Muhammad Taqi Usmani, fyrrverandi dómari í Pakistan og áhrifamikill íslamskur trúarleiðtogi, hafi flutt trúarlegan fyrirlestur í Stórmoskunni við Bústaðaveg í síðustu viku.
Stefán Einar hjólar í biskup Íslands – „Liggur WI-FI-tengingin á Biskupsstofu niðri?“