Samstæður stærstu útgerða landsins og tengd félög þeirra áttu í lok árs 2024 eignir að andvirði 406,3 milljarða króna í öðrum fyrirtækjum. Af þeirri upphæð var stærstur hluti í öðrum útgerðum með kvóta, eða 227,6 milljarðar, en eignir í öðrum íslenskum fyrirtækjum námu samtals tæplega 129 milljörðum.
Þetta kemur fram í skýrslu atvinnuvegaráðherra um eignarhald 20 stærstu útgerðarfélaga landsins í íslensku atvinnulífi árið 2025 sem unnin var af Hagfræðistofnun Háskóla Íslands að beiðni Alþingis.
Fjórar útgerðir eiga samtals 65 prósent þessara rúmlega 400 milljarða. Það eru Brim, Útgerðarfélag Reykjavíkur, Fisk Seafood og Síldarvinnslan. Þær eiga á bilinu 62,8 til 73,1 milljarð í öðrum fyrirtækjum. Á heildina litið á Brim mestar eignir í öðrum félögum.
Stærstan hluta í fyrirtækjum í íslensku atvinnulífi, utan útgerða, átti Fisk Seafood – eða 30,2 milljarða. Útgerðin er í eigu Kaupfélags Skagfirðinga.
Næstmest í íslensku atvinnulífi áttu Útgerðarfélag Reykjavíkur, með 20,6 milljarða, og Brim með 14,6 milljarða. Útgerðarfélag Reykjavíkur er í eigu Guðmundar Kristjánssonar, sem er einnig forstjóri Brims.
Tvö félög áttu langmest í erlendum fyrirtækjum undir lok árs 2024. Það eru Brim með 18,9 milljarða og Síldarvinnslan með 17,9 milljarða.
Í skýrslunni er einnig tiltekið hve mikið fyrirtækin fjárfestu árin 2014-2024. Sé rýnt í þær tölur má sjá að fjárfestingarnar námu 240 milljörðum á tímabilinu, í útgerðum og íslenskum og erlendum fyrirtækjum.