Frystitogarinn Blængur NK kom með 700 tonn til Neskaupstaðar í gær eftir 37 daga úthald en verðmæti aflans er metið á 681 milljón króna. Mun þetta vera stærsti túrinn sem Blængur hefur tekið á Íslandsmiðum.
Á heimasíðu Síldarvinnslunnar er vitnað í skipstjóra Blængs en fyrri hluta veiðiferðarinnar stýrði Bjarni Ólafur Hjálmarsson en Sigurður Hörður Kristjánsson seinni hlutanum.
Samkvæmt Bjarna Ólafi fór veiðin að mestu fram í Kartöflugarðinum og á Látragrunni fyrir Vestan. Uppistaða aflans var grálúða og ýsa. Síðari hluta túrsins var samkvæmt Sigurði Herði mest veitt á Hampiðjutorginu og endað á Breiðdalsgrunni og nærliggjandi svæði.
Blængur heldur aftur á veiðar strax á mánudag að lokinni sjómannadagshelgi.