Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra hefur boðað að frá og með næsta vori verði einkunnir við lok grunnskóla gefnar á bilinu 1 til 10. Er breytingunni ætlað að gera einkunnagjöf gagnsærri og auka jafnræði meðal nemenda. Í tilkynningu ráðuneytisins segir að áfram verði lögð áhersla á fjölbreytt námsmat og að tölukvarði komi ekki í stað faglegs mats kennara á hæfni, framförum og stöðu nemenda.
Spurningamerki sett við áform Ingu Sæland: „Enginn veit nema Jónas fimleikanörd“