Gögn fyrirtækisins sýni að ökumaðurinn hafi ekki verið að keyra á óeðlilegum hraða þegar hann fór út af brú á Þjórsárdalsvegi nærri Sultartangavirkjun.
„Þannig að þetta lítur út eins og óútskýrt slys. Ég held að við verðum eiginlega að segja það þannig,“ bætir Björn við. Ökumaðurinn var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Reykjavíkur um klukkan átta í gærkvöldi þar sem hann var lagður inn á sjúkrahús.
Björn segir að starfsmaðurinn hafi dvalið á Landspítala í nótt en hafði ekki upplýsingar um það hvort hann hafi verið útskrifaður. Bílstjórinn hafi verið orðinn kaldur en Björn viti ekki til þess að neitt alvarlegra hafi amað að honum.
Steypubíllinn var fjarlægður úr Þjórsá á þriðja tímanum í dag. Björn segist ekki hafa upplýsingar um það hvort olía eða annað efni úr bílnum kynni að hafa farið út í ána: „Það er bara verið að kanna þetta.“
Hann á von á því að bíllinn sé ónýtur: „Ég held að það séu nánast engar líkur á að hann lifi af að vera í vatni í hálfan sólarhring eða meira. Það myndi koma mér verulega á óvart.“ Atvikið verði skoðað af tryggingafélagi Steypustöðvarinnar.
Tilkynning barst um óhappið á áttunda tímanum í gærkvöld og var þyrlusveit Landhelgisgæslunnar komin á staðinn um átta mínútur yfir átta, að sögn upplýsingafulltrúa hennar.
Lögregla og björgunarsveit tóku einnig þátt í aðgerðum og minnkaði Landsvirkjun flæði úr Sultartangalóni í ánna, bæði til að minnka líkur á því að bílinn færðist og til að greiða fyrir aðgerðum í dag þegar steypubílinn var færður á land.
Vegagerðin lokaði fyrir umferð um brúnna þar sem bíllinn fór út af í gærkvöldi vegna skemmda á brúarhandriði. Gert er ráð fyrir að viðgerð taki nokkra daga og leiðin verði lokuð eitthvað fram í vikuna. Hjáleið er um Landveg (26) til að komast í Landmannalaugar eða á Sprengisandsleið.
Fréttin hefur verið uppfærð.