Sprengingar kváðu við í sádiarabísku höfuðborginni Riyadh í gærkvöld og nótt og loftvarnarflautur ómuðu.
Fréttaritari AFP kvaðst hafa heyrt tvo háværa sprengjuhvelli. Skömmu síðar tilkynntu almannavarnir að hættan væri afstaðin. Þetta er í fyrsta sinn sem öryggi Riyadh er ógnað frá í júlí þegar átök milli fjölþjóðahersins sem styður stjórnvöld í Jemen undir stjórn Sáda og uppreisnarmanna Húta færðust í aukana.
Hútar hafa á síðustu dögum gert fjölda árása á Sádi Arabíu. Þær hófust eftir að Sádar sökuðu Húta um að hafa ætlað að gera drónaárás á Mekka, helgustu borg múslíma. Hútar þvertóku fyrir það og sögðu ásökunina hreinar lygar.