Greiningardeild Landsbankans spáir því að verðbólga haldist óbreytt í 5,2% í júlí. Hún telur flugfargjöld til útlanda hafa mest áhrif til hækkunar og sumarútsölur og lægra bensínverð til lækkunar.
Hún telur líklegt að verðbólga mælist yfir forsenduákvæði kjarasamninga í ágúst. Forsenduákvæði kjarasamninga kveður á um að heimilt sé að segja þeim upp ef verðbólga í ágúst mælist yfir 4,7%.
Húsnæðisliðurinn er enn metinn helsta skýring verðbólgunnar. Í samantekt greiningardeildarinnar segir hins vegar að framlag hans hafi minnkað jafnt og þétt síðustu mánuði.
Flugfargjöld 23% hærri en í fyrra
Verðathugun greiningardeildar Landsbankans bendir til þess að eldsneytisverð hafi lækkað um tæplega 3% síðan í júní. Heimsmarkaðsverð hafi lækkað talsvert síðasta mánuð en svo hækkað lítillega síðustu daga.
„Við gerum ráð fyrir því að lækkanir komi áfram fram í eldsneytisverði hér á landi næsta mánuðinn, en það ræðst áfram að miklu leyti af sveiflum á heimsmarkaðsverði olíu.“
Gert er ráð fyrir því að flugfargjöld hækki um 15,2% milli mánaða í júlí og verði um 23% dýrari en á sama tíma í fyrra.
Greiningardeildin spáir því að matarkarfan hækki um 0,23% milli mánaða og að árshækkun nemi þá um 4%.