Ísraelsher hefur náð hinum hernaðarlega mikilvæga Beaufort-kastala í suðurhluta Líbanon á sitt vald, en á þeim slóðum nær sókn hersins sífellt dýpra inn í líbanskt yfirráðasvæði.
Aðgerðina segir Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, lýsa „afgerandi breytingu“ í sókn sinni gegn Hisbollah-vígasamtökunum, en öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur kallað til neyðarfundar vegna stöðunnar á morgun.
Ísraelsher hefur jafnframt stækkað ráðlagt rýmingarsvæði í suðurhluta Líbanons, og hefur forsætisráðherra Líbanons, fordæmt aðgerðir hersins og sakað Ísrael um að beita sameiginlegri refsingu.
Að störfum á öllum vígstöðvum
Í yfirlýsingu sem Netanjahú sendi frá sér á sunnudag eftir að kastalinn, sem hefur verið lykilatriði í stjórnun svæðisins sem hann gnæfir yfir frá því á tímum krossfaranna, var tekinn sagði hann aðgerðina marka „afgerandi áfanga og afgerandi breytingu á stefnu okkar“.
„Við höfum rofið óttamúrinn. Við höfum tekið frumkvæðið, við erum að störfum á öllum vígstöðvum – í Sýrlandi, á Gasa, í Líbanon,“ sagði hann.
Netanjahú bætti við að markmið hans væri að dýpka og auka tök hersins á þeim stöðum sem áður voru undir stjórn Hisbollah.
Neyðarfundur á fætur neyðarfundi á morgun
Að sögn heimildarmanna AFP hefur öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kallað til neyðarfundar á morgun vegna stöðunnar í Líbanon að frumkvæði Frakka.
Sá fundur mun eiga sér stað beint í kjölfar neyðarfundar vegna rússnesks dróna sem hæfði íbúðabyggingu í Rúmeníu í fyrradag.
