Bifreiðin sem lenti utan vegar á Krýsuvíkurvegi eftir miðnætti á sunnudagskvöld, með þeim afleiðingum að þrjú ungmenni létust, er sögð hafa verið á yfir 200 kílómetra hraða áður en slysið varð.Vísir greinir frá þessu og hefur eftir heimildum sínum að gögn sem hafa verið í dreifingu bendi til þess að bíllinn hafi verið á yfir 200 kílómetra hraða áður en slysið varð. DV hefur einnig heimildir fyrir því að hraðakstur sé til rannsóknar hjá lögreglu.
Slysið á Krýsuvíkurvegi: Bíllinn sagður hafa verið á yfir 200 kílómetra hraða