Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ - Vísir

Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ - Vísir

Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ - Vísir

Sex eru ákærð fyrir að hafa frelsissvipt, fjárkúgað og beitt maltneskan mann stórfelldu ofbeldi í Reykholti í apríl árið 2024. Aðalmeðferðin hófst á mánudag og stendur til að hún verði fram í næstu viku. Auk ákærðra er bróðir Péturs, Andri Már Mortensen Birgisson.

Pétur var nýorðinn átján ára þegar umrædd brot eiga að hafa átt sér stað. Hann lýsir því hvernig Andri hringdi í hann aðfaranótt laugardags og sagði að einhver væri að reyna myrða hann.

„Hann væri í aðstæðum sem hann vilji alls ekki vera í og ég þurfi að sækja hann,“ segir Pétur Már.

Pétur hafi keyrt af stað í áfalli og hringdi Andri svo aftur til að biðja hann um að ná í Ingunni Rut, unnustu sína, í leiðinni. Hún hafi verið mjög utan við sig.

„Hörmuleg lykt“

Minningar hans eftir að þau mættu í Reykholt séu allar í móðu. 

„Ég man að það var hörmuleg lykt, eins og blóð. En ég man ekki eftir neinu þannig séð.“

Á þessum tíma hafi hann að mestu verið inni í íbúðinni en af og til farið út til að veipa og ná sér niður. Pétur man eftir því að hafa komið dýnu fyrir og rótað í blöðum að beiðni Andra.

„Ég reyndi að gefa [brotaþola] að drekka á einhverjum tímapunkti,“ sagði Pétur Már.

Hvorki brotaþoli né Pétur hafi mátt fara út. Aðspurður hvort brotaþoli hafi verið bundinn sagðist hann ekki muna hvenær eða með hvaða hætti en muni samt að á einhverjum tímapunkti hafi fætur hans verið bundnir.

Brotaþoli hafi ekki viljað hafa þá þarna og segist Pétri ekki hafa liðið vel. 

Ætlaði að fá bíl að gjöf

Pétur hafi látið Andra fá bíllyklana sína til að byrja með en eftir einhvern tíma hafi Pétur logið að Andra að hann þyrfti að fara, fengið lyklana aftur og keyrt af stað til Reykjavíkur.

„Ég vildi komast í burtu frá þessu,“ sagði Pétur við dómara.

Yfir helgina hafi Pétur farið tvisvar sinnum til Reykjavíkur og í bæði skiptin snúið aftur til baka. Í fyrra skiptið segist hann hafa hitt Sigurð Gunnar, pabba Ingunnar, sem er einnig ákærður í málinu.

Þar hafi Sigurður sagst ætla að gefa honum bíl eftir að Pétur sagðist ekki hafa haft efni á að kaupa hann. 

Í seinni Reykjavíkurferðinni hafi Pétur alls ekki viljað snúa aftur.

„Á leiðinni til baka stoppa ég á byggingarsvæðinu þar sem er verið að byggja nýjan veg eftir Norðlingaholti og ég brýt part af kælikerfinu í bílnum mínum svo ég hef þá afsökun að koma ekki til baka.“

Eftir einhvern tíma hafi Andri svo hringt.

„Þá með engum fyrirvara eða hann hringdi í mig, þá byrjaði ég að fara aftur í kvíðakast. Ég man ekki hvað gerðist en ég man eftir tilfinningunum mínum.“

Pétur var taugaóstyrkur þegar hann talaði við dómara, hafði dregið peysuna sína yfir hendurnar og ruggaði sér örlítið í stólnum.

Stóð við baðherbergishurðina

Á mánudeginum eftir þessa umræddu helgi, í apríl 2024, hafi hann heyrt Ingunni og Andra ræða um flugferð en ekkert móttekið hvað þau væru að segja.

„Þar á milli segir hann mér að horfa yfir hann [brotaþola] á meðan hann fer í sturtu. Ingunn er inni á baðherberginu með honum og stend við baðherbergishurðina með bakið að þeim,“ sagði Pétur.

Ingunn hafi eitthvað verið að hafa brotaþola til, jafnvel farða hann. Þau hafi síðan farið af stað til Reykjavíkur en á leiðinni hafi Ingunn og Andri rifist.

Þegar til Reykjavíkur var komið hafi þau stoppað fyrir utan verslun Símans.

„Ég var ekki að fatta af hverju, ég var sitjandi úti í bíl á meðan þau voru inni.“

Loks hafi þau haldið af stað heim til Andra, Pétur og Ingunn hafi keyrt með brotaþola um götur höfuðborgarsvæðisins og loks farið út á Keflavíkurflugvöll. Pétur segist ekki hafa komið með þeim inn í sjálfan flugvöllinn heldur beðið úti í bíl.

Baðst afsökunar

Pétur segist aldrei hafa séð neinn beita brotaþola ofbeldi. Brotaþoli hafi samt sem áður verið marinn yfir andlitið og líkamann, átt erfitt með að hreyfa sig og átti erfitt með að tyggja og borða.

Pétur og brotaþoli hafi talað saman um fjölskyldu brotaþola, líf hans og hvert hann hefði ferðast. Sjálfum hafi Pétri liðið illa og játar hann því að hafa beðið hann afsökunar.

„Já, ég held ég hafi beðið hann afsökunar á mörgum tímapunktum út af því sem var búið að gerast.“

Brotaþoli sagði í skýrslutöku að Pétur hefði verið sá sem beitti hann minnsta ofbeldinu en hefði samt sem áður lamið hann nokkrum sinnum. Eftir það hefði Pétur beðið hann afsökunar. 

Pétur neitaði því alveg að hafa beitt brotaþola ofbeldi og að hafa átt í hótunum við hann. 

Hvað varðar þær 3,5 milljónir sem hann fékk á reikninginn sinn sagðist Pétur hafa haldið að peningurinn væri frá Andra og komst ekki að því fyrr en eftir að hann var handtekinn að peningurinn hefði komið af reikningi brotaþola. 

Hann sagðist ekki hafa vitað af hverju bróðir hans ætti að hafa verið að borga honum. Þá man Pétur ekki hver upphæðin var nema að hún hafi verið há.

Óttaðist bróður sinn

Pétur segist hafa verið hræddur við Andra bróður sinn, sem sé þrettán árum eldri en hann. Pétur rifjar upp matarboð með fjölskyldunni þar sem Andri og Ingunn mættu. Allir hefðu vaknað nóttina eftir vegna öskra og láta í rifrildi þeirra á milli.

Einnig hafi Andri eitt sinn látið eins og hann ætlaði að keyra á Pétur og foreldra þeirra þegar þau voru að sækja dót Andra heim til fyrrverandi kærustu hans og barnsmóður. 

Aðspurður af hverju hann kom brotaþola ekki til hjálpar segist Pétur hafa verið hræddur.

„Hræddur um að hann myndi veita mér skaða að einhverju leyti, mér eða kærustunni minni,“ sagði Pétur.

„Ef maður sagði vitlausan hlut við hann gat það blossast upp í reiði.“

Vegna þessa hafi hann hlýtt Andra og verið á svæðinu eftir að hafa upphaflega ætlað einungis að sækja hann og skutla honum heim.

Ætti að vera rétt en muni  það ekki

Þegar skýrslutökur lögreglunnar eru bornar undir Pétur segist hann muna eftir fæstu en sagði að hann hafi alltaf reynt að segja satt og rétt frá og því hlýtur það að hafa verið rétt.

Í skýrslutöku lögreglu sagðist Pétur telja sig sekan. 

„Ég sakaði mig mjög mikið um það sem gerðist. Ég hefði átt að hjálpa honum meira,“ sagði Pétur fyrir dómara.

Bornar eru undir hann lýsingar á því að hann hafi sagt að þegar hann mætti í Reykholt hafi Andri setið í stól í íbúð brotaþola með hanska og haldið á keðju. Einnig hafi blóð verið á peysu Andra.

„Ég man ekki eftir því en það hlýtur að hafa verið rétt.“

Rödd Andra olli skelfingu

Upptaka af símtali Andra og Ingunnar, þar sem Pétur er einnig til tals, var spiluð fyrir dómi. Fyrsta upptakan var tekin þegar Andri á að hafa farið í hraðbanka með greiðslukort brotaþola en reyndist ekki vera með rétt pin-númer.

 Við þetta beygði Pétur höfuðið niður og átti erfitt með að svara spurningum sækjanda.

„Ég man ekki eftir því,“ sagði hann við spurningum um hvað hafi verið í gangi á meðan símtalið stóð yfir.

Þá var annað símtal spilað þar sem Pétur og Andri töluðu saman um að setja upp auðkenni.

„Þú átt eftir að elska mig,“ sagði Pétur í upphafi símtalsins.

Aðspurður hvað hann meini gat hann ekki svarað og sagðist einungis finna fyrir ótta. Verjandi hans útskýrði að hann heyrði rödd bróður síns og það hafi valdið honum mikilli skelfingu. 

Þarna óskaði Pétur eftir hléi og fór afsíðis með verjandanum og foreldrum sínum, sem hafa verið viðstödd alla aðalmeðferðina. Það var annað hlé skýrslutökunnar sem Pétur óskaði eftir og virtist hann í miklu uppnámi í bæði skiptin.

„Ég get ekki meira,“ sagði Pétur þegar hann kom til baka með tárin í augunum og afar andstuttur.

Hann átti erfitt með tal og lauk þar með skýrslutökunni þar sem hann treysti sér ekki í meira.

#ekki #get #lauk #skyndilega #skýrslutökunni


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262923122d/skyrslutokunni-lauk-skyndilega-eg-get-ekki-meira-

📰 Aðrar fréttir

Kaldrifjað morð í Kentucky – Ólétt kona fannst látin og fóstrið skorið úr henni
📅 08.10.2026 👁️ 1
Kaldrifjað morð í Kentucky – Ólétt kona fannst látin og fóstrið skorið úr henni
Ólétt kona á fimmtugsaldri fannst látin á heimili sínu í Kentucky. Hafði kviður hennar verið ristur upp og fóstrið fjarlægt úr legi hennar.Breska blað...
Vestnorrænir leiðtogar funduðu í fyrsta sinn
📅 07.10.2026 👁️ 0
Vestnorrænir leiðtogar funduðu í fyrsta sinn
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra fundaði í dag með leiðtogum Færeyja og Grænlands sem eru staddir hér á landi á fyrsta fundi oddvita vestnorrænu...
Eritrea skiptir um lið og sendir her­menn inn í Tigray - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Eritrea skiptir um lið og sendir her­menn inn í Tigray - Vísir
Leiðtogar Frelsisfylkingarinnar lýstu því yfir í síðasta mánuði að þeir hefðu gert bandalag við aðrar fylkingar í Eþíópíu og saman ætluðu þessar fylki...
VR hyggst segja upp kjarasamningum á morgun
📅 07.10.2026 👁️ 0
VR hyggst segja upp kjarasamningum á morgun
Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir að kjarasamningum félagsins verði sagt upp á morgun að öllu óbreyttu. Stjórn VR kom saman síðdegis í dag og lauk...
We spent thousands on a Tui river cruise but ended up on coach trips
📅 07.10.2026 👁️ 0
We spent thousands on a Tui river cruise but ended up on coach trips
Passengers have described their anger after their itineraries changed to involve hours spent on coach trips instead.
Burnham and Merz to hold security talks in Berlin
📅 07.10.2026 👁️ 1
Burnham and Merz to hold security talks in Berlin
Downing Street said deeper co-operation in the face of rising hybrid threats from Russia would be high on the agenda during Burnham's first official v...
Bank of England reveals the four animals to feature on banknotes
📅 07.10.2026 👁️ 1
Bank of England reveals the four animals to feature on banknotes
The decision comes after nearly half a million people cast their votes from a shortlist of 18 creatures.
„Kannski eru þau að niðurlægja okkur öll og grafa undan sjálfri menningunni“
📅 07.10.2026 👁️ 2
„Kannski eru þau að niðurlægja okkur öll og grafa undan sjálfri menningunni“
Ekki myndu allir sætta sig við 10 þúsund krónur í laun fyrir einn og hálfan vinnudag. Þetta þurfa þó þeir pistlahöfundar sem taka þátt í Uppástandi á ...
Samþykktu einróma að slíta kjarasamningum á morgun
📅 07.10.2026 👁️ 2
Samþykktu einróma að slíta kjarasamningum á morgun
Stjórn VR samþykkti einróma í kvöld að slíta kjarasamningum á morgun. Frá þessu greinir Vísir.Halla Gunnarsdóttir formaður VR segist ekki skynja vilja...
Segir orð sín um „heimskulegt“ frumvarp hafa verið tekin úr samhengi
📅 07.10.2026 👁️ 2
Segir orð sín um „heimskulegt“ frumvarp hafa verið tekin úr samhengi
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir ummæli sín um frumvarp stjórnvalda um leiguvernd hafa verið tekin úr samhengi að einhverju leyti.Ásgeir sagði í ...
Former Venezuelan President Nicolás Maduro expected to face more charges this week
📅 07.10.2026 👁️ 2
Former Venezuelan President Nicolás Maduro expected to face more charges this week
The new charges are expected to accuse Maduro and his wife of playing a role in the torture of Americans in Venezuelan prisons, US media reports.
Byggðaráð vill ekki breyta Valaskjálf í bæjarskrifstofur
📅 07.10.2026 👁️ 2
Byggðaráð vill ekki breyta Valaskjálf í bæjarskrifstofur
Byggðarráð í Múlaþingi hefur mælt gegn því að sveitarfélagið kaupi Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum undir bæjarskrifstofur. Íbúar hafa undanfarið lýst ó...
Sam­þykktu að slíta kjara­samningum - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Sam­þykktu að slíta kjara­samningum - Vísir
„Ég var með fund í stjórn VR þar sem var einróma samþykkt að slíta kjarasamningum á morgun,“ segir Halla Gunnarsdóttir formaður VR í samtali við Vísi....
Niður­rif hafið á Laugasól - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Niður­rif hafið á Laugasól - Vísir
Samkvæmt svörum frá Reykjavíkurborg er unnið að gerð deiliskipulags á grundvelli hönnunarforsendna fyrir nýjan leikskóla. Ekki liggi þó enn fyrir enda...
Drap Christian Zedig með einu hnefahöggi – dæmdur í aðeins eins árs fangelsi
📅 07.10.2026 👁️ 2
Drap Christian Zedig með einu hnefahöggi – dæmdur í aðeins eins árs fangelsi
Nkumba Ludovic Tshiembe, 31 árs, hefur verið dæmdur í eins árs fangelsi fyrir árásina á sænska lögreglumanninn og tveggja barna föðurinn Christian Zed...
Ummæli Trump um árásir á tvær bandarískar borgir sögð landráð - Hvíta húsið segir viðbrögðin bjánaleg
📅 07.10.2026 👁️ 2
Ummæli Trump um árásir á tvær bandarískar borgir sögð landráð - Hvíta húsið segir viðbrögðin bjánaleg
Ummæli Donald Trump Bandaríkjaforseta um árásir Írans á tvær borgir í Kaliforníu hafa vakið hörð viðbrögð og þá sérstaklega hjá pólitískum andstæðingu...
Christa Pike 'angry and confused' after failed execution, lawyers say
📅 07.10.2026 👁️ 2
Christa Pike 'angry and confused' after failed execution, lawyers say
Lawyers say the convicted killer was surprised to have survived and remained "shackled" to her hospital bed.
Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ - Vísir
„Þá mátt ekki sýna forsetaembættinu vanvirðingu,“ sagði Trump við blaðamenn í Hvíta húsinu í dag. Forsetinn var spurður út í ummæli hans um að ef Demó...
Gervigreind mun bæði útrýma og skapa milljónir starfa
📅 07.10.2026 👁️ 2
Gervigreind mun bæði útrýma og skapa milljónir starfa
Erik Brynjolfsson er einn kunnasti hagfræðingur Bandaríkjanna þegar kemur að mati á efnahags- og félagslegum áhrifum gervigreindar á vinnumarkað. Hann...
Fangelsi undir Vatna­jökli - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Fangelsi undir Vatna­jökli - Vísir
Nýi leikvangurinn var gefinn út í gær, þriðjudag, samhliða uppfærslu á leiknum þar sem nýtt efni var kynnt til leiks. Overwatch er fjölspilunarleikur ...
„Von­brigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 3
„Von­brigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ - Vísir
„Það eru auðvitað vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk,“ segir Jens-Frederik Nielsen, formaður grænlensku landstjórnarinnar, í samta...
Hvað eiga danskir tómatar og íslensk svefntækni sameiginlegt?
📅 07.10.2026 👁️ 3
Hvað eiga danskir tómatar og íslensk svefntækni sameiginlegt?
Þróun gervigreindarlíkana fleygir fram á ógnarhraða. Árið 2023 töldu tæplega 3.000 sérfræðingar að það gæti tekið allt að 27 ár fyrir gervigreind að l...
Ógnarástand um borð í flugi Icelandair þegar æði rann á íslenskan taugasálfræðing
📅 07.10.2026 👁️ 3
Ógnarástand um borð í flugi Icelandair þegar æði rann á íslenskan taugasálfræðing
Maður sem ákærður hefur verið fyrir líkamsárás, hótun og brot gegn lögum um loftferðir um borð í flugi Icelandair á leið frá Baltimore í Bandaríkjunum...
Ljósa­staurar bilaðir víða í Reykja­vík - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 3
Ljósa­staurar bilaðir víða í Reykja­vík - Vísir
Meðal annars hafa borist ábendingar um að slökkt sé á ljósastaurum á Sæbraut og í Breiðholti. Frá Vegagerðinni, sem heldur utan um ljósastaura við sto...
Kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á Hringbraut
📅 07.10.2026 👁️ 3
Kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á Hringbraut
Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli við JL-húsið við enda Hringbrautar. Talsverður eldur kom upp og mikill reykur myndaðist í framhaldinu. Unnið er a...
Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á stigagangi
📅 07.10.2026 👁️ 2
Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á stigagangi
Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á stigagangi í JL-húsinu við enda Hringbrautar. Talsverður eldur kom upp og mikill reykur myndaðist í framhaldinu...
Ræst út vegna logandi rafmagnshlaupahjóls - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 3
Ræst út vegna logandi rafmagnshlaupahjóls - Vísir
Að sögn varðstjóra slökkviliðs gekk vel að slökkva eldinn og hann hefur ekki breiðst út. Nú stendur reykræsting yfir. Slökkviliðið hafi verið ræst út ...
Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls - Vísir
Að sögn varðstjóra slökkviliðs gekk vel að slökkva eldinn og hann hefur ekki breiðst út. Nú stendur reykræsting yfir. Slökkviliðið hafi verið ræst út ...
Bilun í ljósastaurum víða um borgina
📅 07.10.2026 👁️ 3
Bilun í ljósastaurum víða um borgina
Bilun er í ljósastaurum víða um borgina. Vegagerðin segir að tilkynnt hafi verið um bilanir á Sæbraut og Miklubraut og að unnið sé að viðgerðum. Vegag...
Israelis mourn 7 October attack victims as Gaza lies in ruins three years on
📅 07.10.2026 👁️ 3
Israelis mourn 7 October attack victims as Gaza lies in ruins three years on
Memorial events have taken place in Israel on the third anniversary of the Hamas-led attack that sparked the devastating Gaza war.
Engin brottfararstöð í desember
📅 07.10.2026 👁️ 3
Engin brottfararstöð í desember
Ljóst er að opnun brottfararstöðvar fyrir útlendinga í Reykjanesbæ tefst um að minnsta kosti nokkra mánuði. Hana átti að opna eftir minna en tvo mánuð...
„Það er smá töffari í mér“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 3
„Það er smá töffari í mér“ - Vísir
Sigríður Margrét er fimmtíu ára gömul og sækir tískuinnblásturinn meðal annars til kvenna í kringum sig. Sömuleiðis er hún dugleg að lesa tískutímarit...
Serbar á Ís­landi mót­mæla: „Það er ósann­gjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 3
Serbar á Ís­landi mót­mæla: „Það er ósann­gjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ - Vísir
„Við söfnuðum yfir 100 undirskriftum og fundum hentugt húsnæði í Reykjavík til að opna kjörstað fyrir komandi kosningar í Serbíu, eins og kosningalög ...
Watch: What we know about Christa Pike's 'shock' recovery
📅 07.10.2026 👁️ 0
Watch: What we know about Christa Pike's 'shock' recovery
The US death row inmate's legal team said at a press conference that she is now "conscious and speaking" after her failed execution.
Hannes segir þetta ástæðuna fyrir stuðningi við Hamas – „Hvaða þvæla er þetta eiginlega?“
📅 07.10.2026 👁️ 3
Hannes segir þetta ástæðuna fyrir stuðningi við Hamas – „Hvaða þvæla er þetta eiginlega?“
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, er harðlega gagnrýndur fyrir að segja að Hamas njóti stuðnings á Vesturlöndum þar...
„Þetta minnti okkur á upphaf stríðsins“
📅 07.10.2026 👁️ 3
„Þetta minnti okkur á upphaf stríðsins“
Í dag eru þrjú ár síðan Hamas-samtökin gerðu mannskæðustu hryðjuverkaárás á Ísrael í sögu landsins. Íbúar Gaza vöknuðu við árásir snemma morguns sem m...
Vilja framtíðarsýn í skólamálum og kalla eftir samtali
📅 07.10.2026 👁️ 3
Vilja framtíðarsýn í skólamálum og kalla eftir samtali
Kennarasamband Íslands kynnti í dag tillögur að stefnumótun til framtíðar í menntamálum, Blásum byr í seglin, og þau verkefni sem ráðast þarf í til að...
Loðinn rummungur fer ránshendi um Vesturbæinn
📅 07.10.2026 👁️ 3
Loðinn rummungur fer ránshendi um Vesturbæinn
Kötturinn Dreki fer ránshendi um Vesturbæinn í Reykjavík, tekur ýmislegt ófrjálsri hendi - en sinnir líka hreinsunarstörfum.„Hann er þjófóttur kisi. H...
Fangaði sólar­upp­rás á Mars - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 3
Fangaði sólar­upp­rás á Mars - Vísir
Könnunarfarið Curiosity, sem er statt á yfirborði Mars, fangaði í ágúst sólarupprás á rauðu plánetunni svokölluðu. Það var þegar farið var notað til a...
Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 3
Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni - Vísir
Högni Alvar Harðarson Önnuson er formaður Orators, félags laganema við Háskóla Íslands, en hann útskýrir í samtali við Vísi að félagið bjóði um þessar...
Fraudster jailed over multi-million pound PPE scam
📅 07.10.2026 👁️ 3
Fraudster jailed over multi-million pound PPE scam
Craig Morris was sentenced to three years and nine months in prison at Northampton Crown Court.
Tug­milljóna gjald­þrot fé­lags fíkniefnasmyglara - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 3
Tug­milljóna gjald­þrot fé­lags fíkniefnasmyglara - Vísir
Í auglýsingu í Lögbirtingablaði dagsins segir að félagið hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta þann 3. júní síðastliðinn og skiptum lokið þann 23. sep...
Fékk nóg eftir aldarfjórðung og vildi ekki leyfa nágrönnunum lengur að keyra yfir lóðina
📅 07.10.2026 👁️ 3
Fékk nóg eftir aldarfjórðung og vildi ekki leyfa nágrönnunum lengur að keyra yfir lóðina
Eigandi lóðar í frístundabyggð í Grímsnes- og Grafningshreppi hafði ekki erindi sem erfiði þegar hann kærði breytingu á deiliskipulag fyrir byggðina s...
Spanish pensioner whose eviction sparked nationwide protests dies, union says
📅 07.10.2026 👁️ 3
Spanish pensioner whose eviction sparked nationwide protests dies, union says
Maricarmen Abascal, 87, was forcibly removed on a stretcher from her apartment of more than 70 years in September.
Telur orð Seðlabankastjóra fullkomlega óábyrg
📅 07.10.2026 👁️ 3
Telur orð Seðlabankastjóra fullkomlega óábyrg
Fyrstu umræðu um áðurnefnd húsaleigulög ríkisstjórnarinnar, sem oft eru kölluð leigubremsa, var fram haldið á Alþingi í dag en stjórnarandstaðan vildi...
Man to face trial for attempted murder of British child in Alps park attack
📅 07.10.2026 👁️ 3
Man to face trial for attempted murder of British child in Alps park attack
Abdalmasih Hanoun, accused of carrying out an attack at a French park in 2023, is set to face trial.
Man charged with 13 attempted murders including British child
📅 07.10.2026 👁️ 3
Man charged with 13 attempted murders including British child
Abdalmasih Hanoun, accused of carrying out an attack at a French park in 2023, is set to face trial.
„Við erum að gefa boltann upp“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 3
„Við erum að gefa boltann upp“ - Vísir
Magnús Þór var framsögumaður á blaðamannafundi Kennarasambandsins sem fór fram í Réttarholtsskóla í dag. Þar kynnti hann stefnumótun og áherslur samba...
Greipur skemmtir í Sykursalnum
📅 07.10.2026 👁️ 3
Greipur skemmtir í Sykursalnum
Grínistinn Greipur Hjaltason verður með uppistand í Sykursalnum, Grósku, á fimmtudagskvöld og hefst sýningin kl. 21. Yfirskrift uppistandsins er „Grei...
Þétta sam­starfið í út­norðri - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 3
Þétta sam­starfið í út­norðri - Vísir
Þetta kom fram á blaðamannafundi Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra, Jens Frederik Nielsen, formanns grænlensku landsstjórnarinnar, og Beini Joh...