Skýringar Péturs Péturssonar, fyrrverandi slökkviliðsstjóra Brunavarna Árnessýslu, á atriðum sem varða fjárhag byggðasamlagsins þóttu ekki fullnægjandi. Málinu hefur verið vísað til lögreglunnar á Suðurlandi.
Þetta segir Sveinn Ægir Birgisson, formaður stjórnar Brunavarna Árnessýslu, í samtali við mbl.is.
Pétur lét af störfum samstundis samkvæmt samkomulagi um starfslok og fær ekki frekari launagreiðslur í kjölfarið, að sögn Sveins.
Ábending barst fyrir fjórum vikum
Málið kom upp eftir að stjórn Brunavarna barst ábending fyrir um fjórum vikum. Sveinn vill ekki greina frá því hver kom ábendingunni á framfæri.
„Hún varðar fjárhag Brunavarna,“ segir Sveinn og tekur fram að málinu hafi verið vísað til lögreglu eingöngu á grundvelli þeirrar ábendingar og þeirra upplýsinga sem stjórn hefur undir höndum.
Stjórnin hóf gagnaöflun eftir að ábendingin barst og kallaði Pétur fljótlega á fund. Þar var honum gefið tækifæri til að útskýra þau atriði sem voru til skoðunar.
„Stjórn taldi skýringar viðkomandi ekki fullnægjandi og ekki svara þeim spurningum sem uppi voru. Málinu var því vísað til lögreglu,“ segir Sveinn.
Um almannafé að ræða
Sveinn segir stjórn Brunavarna líta málið alvarlegum augum, ekki síst þar sem um sé að ræða almannafé frá þeim átta sveitarfélögum sem standa að byggðasamlaginu.
„Stjórnin lítur málið alvarlegum augum, enda er um almannafé að ræða frá átta sveitarfélögum. Stjórnir sveitarfélaganna líta málið einnig alvarlegum augum,“ segir hann.
Tilkynning um málið var send starfsmönnum Brunavarna Árnessýslu í morgun, samhliða opinberri yfirlýsingu stjórnarinnar. Sveinn segist ekki hafa fengið bein viðbrögð frá starfsmönnum að svo stöddu.