Sólin skein þegar gestir mættu á SkýBar og fögnuðu útgáfunni í góðri stemningu. Viðburðurinn var boðspartý þar sem tónlistarunnendur komu saman til að upplifa Elvar frumflytja lagið í fyrsta sinn á sviði.
„Hlið við hlið“ með Elvari er þriðja lagið í Ábreiðuröð Nova en áður hafa komið út lögin „Reykjavíkurnætur“ með Inspector Spacetime og „Súperman“ með Saint Pete.
Fimmtudagsvöldið hófst á upphitun frá söngkonunni Tatjönu, sem setti tóninn og kom gestum í góðan gír strax í upphafi. Elvar tók við af henni og frumflutti „Hlið við hlið“við góðar undirtektir gesta áður en plötusnúðurinn DJ Mellí 777 tok við keflinu og hélt partýinu gangandi fram á kvöld.
Ljósmyndarinn Róbert Arnar fangaði stemminguna eins og honum er einum lagið. Ljósmyndir af viðburðinum má sjá hér að neðan:
„Hlið við hlið“ með Elvari er nú komið út og hægt er að hlusta á það hér að neðan: