Karlmaður á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir að míga á fjögurra manna fjölskyldu á kántrý tónleikum í Bandaríkjunum. Slagsmál brutust út eftir að maðurinn skvetti úr skinnsokknum.Tímaritið People greinir frá þessu.Hinn 33 ára gamli Jayson Reed var handtekinn, fangelsaður og ákærður eftir að hann meig á fjögurra manna fjölskyldu. Atvikið átti sér stað á leikvanginum M&T Bank Stadium í Baltimore þann 18. júlí síðastliðinn þar sem kántrý-popp stjarnan Morgan Wallen tróð upp.
Skvetti úr skinnsokknum yfir fjögurra manna fjölskyldu á tónleikum kántrýstjörnu