Málefnasamningur nýs bæjarstjórnarmeirihluta var kynntur á Akureyri í dag en að honum standa Sjálfstæðisflokkurinn, Framsóknarflokkurinn og L-listinn. Í fyrsta sinn í síðan 2010 mun bæjarstjóri Akureyrar koma úr röðum kjörinna fulltrúa. Berglind Ósk Guðmundsdóttir mun gegna embætti bæjarstjóra næstu fjögur árin:
„Þetta er skref inn í framtíðina og við sjáum bara mikil tækifæri til þess að koma okkar stefnumálum á framfæri með skýrum og afdráttarlausum í gegnum þetta hlutverk og við gerum það saman og í samvinnu,“ sagði Berglind Ósk, oddviti Sjálfstæðisflokksins og verðandi bæjarstjóri.
„Ég held að Berglind sé bara mjög flottur kandídat“
Óðinn Svan Óðinsson verður formaður bæjarráðs á Akureyri næstu fjögur árin. L-listinn er að hefja sitt fimmta kjörtímabil í meirihluta:
„Við vorum bara sammála um það við þetta borð að það væri kominn tími til að prufa eitthvað nýtt. Svo kemur þessi hugmynd frá Sjálfstæðisflokknum að þau taki þennan stól. Við þurftum að meta það innan okkar hóps hvort það væri eitthvað sem við værum tilbúin í og það var niðurstaðan. Ég held að Berglind sé bara mjög flottur kandídat í þetta og muni gera þetta vel,“ sagði Óðinn Svan Óðinsson, oddviti L-listans.
L-listinn fékk hreinan meirihluta í kosningunum árið 2010 og réð fyrsta ópólitíska bæjarstjórann á Akureyri og þannig hefur það verið síðan.
Framsóknarfólk er ánægt með samkomulagið
Framsóknarflokkurinn er að koma nýr inn í meirihluta á Akureyri en fjögur ár eru síðan hann sat þar síðast. Þrátt fyrir að vera með tvo menn kjörna fengu þeir minnsta fylgið af flokkunum þremur í kosningunum. Oddviti þeirra, Sunna Hlín Jóhannesdóttir, er sátt við meirihlutasamkomulagið og nýtt fyrirkomulag með bæjarstjóra:
„Þetta er kannski ekki beint stefnubreyting. Ég sá ekki fyrir mér sjálf að ég myndi fara í þennan stól,“ segir Sunna Hlín og bætir við: „Ég er til í að prófa þetta það er langt síðan við höfum verið með pólitískan bæjarstjóra og ég er spennt fyrir að sjá hvernig það gengur.“