Einn er særður og byssumaðurinn er látinn eftir skotárásina við Hvíta húsið fyrr í kvöld. Svo virðist sem byssumaðurinn hafi skotið á leyniþjónustumann sem skaut byssumanninn til baka. Hann lést síðar af áverkum sínum á spítala, samkvæmt CBS News. Vegfarandi særðist einnig en ekki er vitað hver skaut á hann. Engir leyniþjónustumenn særðust í árásinni.
Donald Trump Bandaríkjaforseti var í Hvíta húsinu þegar byssumaðurinn réðst til atlögu við Hvíta húsið. Skotárásin var gerð um klukkan sex að staðartíma. Fjölmennur hópur fjölmiðlafólks á vegum CBS News var við störf á norðurhlið hússins þegar skothvellirnir heyrðust. Fréttamaður ABC News, Selina Wang, var á vettvangi og lýsti því einnig að hún hefði heyrt tugi skothvella. Hér má sjá myndskeið sem hún deildi af atvikinu.
Lögregla girti af svæðið og þjóðvarðarliðar meinuðu fyrst fréttamanni AFP fréttaveitunnar að fara inn á svæðið. Fjölmennt lið Alríkislögreglunnar og leyniþjónustunnar var á vettvangi. Fréttaveitan AFP hefur eftir kanadískum ferðamanni að hann hafi heyrt um 20-25 skothvelli sem hann hélt fyrst að hefðu verið flugeldar og síðan tók hann eftir því að fólk í kringum hann var á hlaupum.
Þrisvar sinnum hafa verið gerðar tilraunir til að skjóta Bandaríkjaforseta, síðast á hátíðarkvöldverði Samtaka blaðamanna Hvíta hússins í Washington þann 25. apríl.