Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og Starfsgreinasambandsins, gagnrýnir Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra og sakar hana um að standa ekki með starfsfólki Hvals hf. í skugga hótana dýraverndarsamtaka Pauls Watson skipstjóra.
Tilefni Facebook-færslu Vilhjálms er viðtal við ráðherra þar sem hún gagnrýnir háttsemi starfsmanna Hvals. Vísir ræddi við Hönnu Katrínu um hvalveiðar og sérstaklega um það þegar starfsmaður Hvals sveiflaði getnaðarlimi dauðs hvals fyrir myndatökumann fréttastofu Sýnar við löndun tíundu langreyðar veiðitímabilsins í gær. Við sama tilefni sungu starfsmenn Hvals þjóðsöng Íslands og einn þeirra hrópaði „Áfram Ísland“.
Í færslunni segist Vilhjálmur ekki ætla að bera blak af hegðun starfsmannanna en hann segir vekja furðu hvernig ráðherra grípi tækifærið til að koma eigin andstöðu við hvalveiðar á framfæri.
Vilhjálmur segir auðvelt að gagnrýna starfsmenn Hvals þegar einstaka atvik koma upp.
„En það er miklu erfiðara að standa með því fólki sem dag eftir dag mætir hótunum og stöðugu áreiti fyrir það eitt að vinna löglegt starf samkvæmt íslenskum lögum og leyfum stjórnvalda,“ skrifar Vilhjálmur.
Hann skorar á ráðherra að sýna starfsmönnum hvals skilning, virðingu og stuðning.
Tekið skal fram að síðar í sama viðtali, sem Vilhjálmur vísar í, segir Hanna Katrín að það sé ólíðandi að aðgerðarsinnar geri sér að leik að hóta fólki sem stundar sína atvinnu. Það liggi fyrir að velferð, heilsu og lífi íslenskra sjómanna verði gætt með öllum tiltækum ráðum.