Framkvæmdastjóri franska bílaframleiðandans Renault, Francois Provost, hefur skorað á Evrópusambandið að frysta reglugerðir um bíla í tíu ár til að hjálpa til við að lækka verð á smábílum.
Segir hann stjórn fyrirtækisins þurfa að glíma við „flóðbylgju reglugerða í Evrópu“.
„Tillaga mín er ofureinföld: Frystið reglugerðir … þá getum við einbeitt okkur að hagkvæmni, við getum einbeitt okkur að rafvæðingu,“ sagði Provost á ráðstefnunni Future of the Car í Lundúnum.
Ef það gerist, „munu allir verkfræðingar okkar […] verja tíma og fjármagni í að lækka verðið fyrir viðskiptavinina“, sagði hann.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
Innskráning
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.