Jarðskjálfti af stærðinni 6,2 varð í Austur-Indónesíu skömmu fyrir hádegi að staðartíma. Skjálftinn átti upptök sín á 120 kílómetra dýpi, um 58 kílómetra vestur af Tobelo. Hans varð vart í allt að 114 kílómetra fjarlægð. Ekki er talin hætta á flóðbylgju og þá hafa ekki hafa borist fregnir af manntjóni eða eyðileggingu af völdum skjálftans.
Skjálfti 6,2 að stærð ekki talinn hafa valdið tjóni