Fitulög sem mega hverfa í borgarrekstrinum
Ánægjulegar breytingarnar í borginni. Vonandi ná D og M saman. Þeir hafa talað fyrir málum sem eru mörgum hugleikin. Vonandi fjarlægja flokkkarnir alla fána sem eiga ekki heima á fánastöngum borgarinnar, bæði við ráðhúsið og allar byggingar, þ.m.t. skóla.
Að sjá íslenska fánann, sem sameinar þjóðina, blakta að húni hjá ráðhúsinu og í skólum borgarinnar, er falleg sjón. Allir finna sig undir íslenska fánanum, séu þeir Íslendingar í raun.
Skera þarf fitulag borgarinnar burt, nauðsyn. Hún hefur safnað miklum skuldum, þökk sé Samfylkingunni, Framsókn og öðrum vinstri öflum. Nú verður það annarra að taka til eftir þá sem hafa eytt umfram efni.
Verður án efa sársaukafullt fyrir einhverja
Ákvörðun um 15 milljarða leikskóla á að taka til baka. Siðleysið sýndi sig meðal stjórnamanna borgarinnar þegar þeir héldu auka fund til að samþykkja slík útgjöld í miðri kosningabaráttu á mjög skulduga borg. Ekki bara siðleysi heldur senda þeir íbúum skilaboð; við höldum áfram bruðlinu.
Jafnréttisskóli borgarinnar er fitulag sem má fara.
Mannréttindaskrifstofa borgarinnar er fitulag sem má fara.
Regboga- og hinsegin vottanir eru fitulög sem mega hverfa, algerlega tilgangslaus hugmyndafræði.
Segja upp samningi við trans Samtökin 78 vegna innkomu þeirra inn í leik- og grunnskóla, sem og ,,fræðslu“ eða heilaþvott borgarstarfsmanna. Fitulag sem má fara.
Gífurlegir styrkir í Gleðigönguna mega minnka umtalsvert, ca 70%, fitulag sem má fara. Hagsmuna og baráttusamtök eiga að sjá um fjármögnun eigin baráttu, ekki borgarbúar.
Allir styrkir til hagsmuna- og baráttusamtaka á að fjarlægja úr rekstri borgarinnar, samtaka eins og trans Samtökin 78. Fitulag sem þarf ekki að vera á borginni.
Skera niður í millistjórnendahópnum, án efa margir í gæluverkefnum Samfylkingarinnar. Fitulag sem má skera í burtu.
Þetta er sennilega bara brot af því sem má skera burt úr rekstri borgarinnar.
Margir kunna að segja að þetta séu ekki stórar upphæðir í samhengi við heildarútgjöldin. Það er ábyggilega rétt, en munum, margt smátt gerir eitt stórt. Milljón hér, tvær milljónir þar og 20 milljónir annar staðar verða stórar upphæðir þegar búið er að taka þetta saman. Munar um allt.
Spennandi vika framundan. Sýnið skynsemi D og M, fólk kaus ykkur til þess. Það vildi breytingar og koma hinum flokkunum út úr stjórnun borgarinnar.
Fallið ekki í sömu gryfju og Einar Þorsteinsson, Framsókn, gerði á sínum tíma. Hann myndaði rangan meirihluti og ekki í takt við vilja kjósendur sem sýndu honum nú að Framsókn er ekki traustsins virði.
Sýnið, D og M, að þið eruð traustsins verð.
Helga Dögg Sverrisdóttir