Skemmtanahald hefur gengið vel um allt land um helgina að sögn lögreglu þrátt fyrir minni háttar fíkniefnamál.
Þótt útihátíðir á Akureyri og í Vestmannaeyjum laði að sér flesta gesti eru margar aðrar hátíðir um allt land þar sem fólk lyftir sér á kreik.
Á fjölskylduhátíðinni Neistaflugi í Neskaupstað gátu þyrstir tekið þátt í freyðivínshlaupi og boltaglaðir í árlegum sápubolta. Á Holtssandi í Önundarfirði reis fjöldi bygginga í sandkastalakeppni sem þar fór fram.
Á Unglingalandsmóti UMFÍ á Sauðárkróki eru þúsund börn á aldrinum 11–18 ára sem njóta lífsins ásamt fjölskyldum sínum. Þar er keppt í yfir 20 íþróttagreinum.
Í Reykjavík er hátíðin Innipúkinn í Austurbæjarbíói, sem dregur að sér fjölda gesta. Þar koma meðal annars fram FM Belfast og Retro Stefson.