Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks, L-lista og Framsóknarflokks í bæjarstjórn Akureyrarbæjar kynnti í gær nýjan málefnasamning sinn á blaðamannafundi í flugstöðinni á Akureyrarflugvelli. Samningurinn hefur nú verið birtur á vef bæjarins og markar helstu áherslur meirihlutans fyrir komandi kjörtímabil.
Í formála samningsins segir að markmiðið sé að leggja grunn að ábyrgri og framsækinni uppbyggingu Akureyrarbæjar með áherslu á atvinnulíf, þjónustu, einfaldari stjórnsýslu og aðhald í fjármálum.
Húsnæði og skipulag í forgangi
Meirihlutinn leggur sérstaka áherslu á húsnæðismál og skipulag. Fram kemur að hraða eigi uppbyggingu íbúðarhúsnæðis og tryggja fjölbreytt framboð lóða til að mæta eftirspurn og styðja við áframhaldandi fólksfjölgun í bænum.
Einnig er stefnt að því að einfalda skipulags- og byggingarferli og gera stjórnsýsluna skilvirkari fyrir íbúa og atvinnulíf.
Áhersla á atvinnulíf og samgöngur
Í samningnum kemur fram að nýr meirihluti ætli að styrkja atvinnulíf á svæðinu og efla hagsmunagæslu bæjarins gagnvart ríkinu. Þar eru sérstaklega nefnd heilbrigðisþjónusta, menntamál, samgöngur og öryggi.
Einnig er lögð áhersla á að bæta samgöngur til og frá Akureyri og styðja við áframhaldandi þróun flugsamgangna og innviða á Norðurlandi.
Velferð, eldri borgarar og hindrunarlaust samfélag
Nýr meirihluti segir bætta þjónustu við eldri borgara verða eitt af lykilverkefnum kjörtímabilsins. Þá er einnig stefnt að því að efla þjónustu við börn og fjölskyldur og byggja upp hindrunarlaust samfélag með auknu aðgengi fyrir alla íbúa.
Í samningnum er einnig lögð áhersla á áframhaldandi uppbyggingu í félags- og velferðarmálum.
Menning og íþróttir áfram stór þáttur
Meirihlutinn segist vilja efla menningarstarf, íþróttir og tómstundir í bænum. Fram kemur að mikilvægt sé að styðja áfram við öflugt félags- og íþróttastarf sem og fjölbreytta menningu sem hafi verið eitt af einkennum Akureyrar undanfarin ár.
Leggja áherslu á ábyrga fjármálastjórn
Í samningnum er lögð rík áhersla á aðhald og ábyrga fjármálastjórn. Þar segir að markmiðið sé að halda rekstri bæjarins stöðugum á sama tíma og ráðist verði í uppbyggingu og aukna þjónustu við íbúa.
Flokkarnir segja að samningurinn eigi að skapa grundvöll fyrir áframhaldandi vöxt og sterkari stöðu Akureyrar sem miðstöðvar atvinnu, menntunar og þjónustu á Norðurlandi.