Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur kynnt til umsagnar drög að reglugerð um notkun síma og snjalltækja í grunnskólum. Samkvæmt drögunum verður notkun síma og snjalltækja sem ekki eru í eigu eða umsjá skóla óheimil á skólatíma.
Tæki í eigu nemenda skulu geymd á fyrir fram ákveðnum stað sem ekki er aðgengilegur nemendum. Hver skóli skal móta eigin reglur um hvar og hvernig tækin verði geymd.
Markmið reglugerðarinnar er að takmarka notkun síma og snjalltækja barna og ungmenna í grunnskólum, ásamt því að samræma og setja skýrari reglur um notkunina.
Reglugerðin ein og sér ekki nóg
Skúli Bragi Geirdal sat í vinnuhópi við gerð reglugerðarinnar fyrir hönd Netvís, sem meðal annars sinnir fræðslu um netöryggi og ábyrga notkun snjalltækja til barna, kennara og foreldra. Hann segir reglugerðina eina og sér ekki duga til heldur þurfi að samtvinna hana við fræðslu. Þá skorti rannsóknir á þessu sviði.
„Ef við horfum til reglugerðarinnar einnar og sér þá held ég að áhrifin séu mjög takmörkuð en ef við horfum á þetta meira heildstætt þar sem við erum að horfa líka á fræðslu og hvernig við lyftum upp öryggri og ábyrgri notkun þá held ég að þetta myndi spila saman og hafa jákvæðari áhrif.“
En mun símabann í skólum hafa áhrif utan skólanna?
„Nei, ég myndi segja að það þyrfti eitthvað að fylgja með sem kæmi fyrir utan skólann því skólinn er bara einn staður og símafrí í skólanum leysir ekki það sem gerist fyrir utan skólann,“ segir Skúli og bætir við að einnig þurfi að ná utan um snjalltækjanotkun heima fyrir og í tómstundastarfi.
Þá bendir Skúli á að ekki sé nóg að horfa bara til tækjanna heldur einnig innihalds þeirra. Börn séu til dæmis komin langt á undan okkur í notkun ýmissa gervigreindarlausna.
„Við þurfum einhvern veginn að horfa fram á veginn, ekki út frá einu tæki heldur út frá öllu þessu stafræna umhverfi sem þau lifa og hrærast í.“
Mikilvægt að tryggja jafnt aðgengi barna að námi
Skúli segir að mikilvægt sé að skólar hafi yfirsýn yfir þau tæki sem notuð eru í kennslu, til dæmis spjaldtölvur. Ekki sé hægt að ganga út frá því að öll börn eigi eins eða jafn góð tæki ef nota á þau í kennslu. Netvís styður það að snjalltæki séu aðeins notuð í kennslufræðilegum tilgangi.
„Það eru atriði sem geta komið upp í frímínútum, að það sé verið að taka myndir og myndbönd og þeim sé deilt áfram, og svo framvegis.“
Reglugerðin gerir þó ráð fyrir undanþágum, til dæmis vegna heilsufarsástæðna, fötlunar, sérþarfa eða námsþarfa.