Þann 29. ágúst svörum við því hvort Ísland eigi að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný. Það er mín einarða skoðun að fleiri Nei yrðu banabiti fyrir framtíð Íslands. Hér er af hverju.Við lifum á tímum þar sem valdajafnvægi heimsins er að riðlast. Rísandi stórveldi og hnígandi stórveldi takast á, og sú togstreita er undirrót nánast allra átaka síðustu misserin. Í miðju baráttunnar liggur tæknin sem ræður úrslitum næstu áratuga: gervigreind.
Sigvaldi Einarsson skrifar: Ein á berangri verður engin þjóð frjáls