Siðanefnd: Ósannindi Helga um Pál skipstjóra góð blaðamennska

Páll Vilhjálmsson skrifar:
Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands úrskurðar að ósannindi Helga Seljan um að Páll skipstjóri Steingrímsson hafi hótað sér og öðrum blaðamönnum sé góð og gild blaðamennska.
Rök siðanefndar eru að samstarfsverkefni Berlingske og RÚV, um að ófrægja skipstjórann, afsaki ósannindi fréttamanns RÚV. Ósannindin voru í drögum að frétt Berlingske, sem RÚV fékk send, og birti sem sannindi - án þess að bera það undir Pál skipstjóra hvort hann hafi hótað Helga og öðrum fréttamönnum. Skipstjórinn kærði fréttina til siðanefndar BÍ.
Siðareglur Blaðamannafélags Íslands segja m.a.:
1. grein
Blaðamaður hefur sannleikann að leiðarljósi...
2. grein
Blaðamaður setur fram upplýsingar á heiðarlegan og sanngjarnan hátt samkvæmt bestu vitund hverju sinni, meðal annars með því að leita andstæðra sjónarmiða þegar við á. Blaðamaður hagræðir ekki staðreyndum og setur ekki fram órökstuddar ásakanir.
3. grein
Blaðamaður leiðréttir rangfærslur sé þess þörf.
6. grein
Blaðamaður gerir greinarmun á staðreyndum og skoðunum, gengur úr skugga um áreiðanleika upplýsinga og gætir þess að umfjöllunin sé hlutlæg.
Fréttastofa RÚV braut allar fjórar tilfærðar siðareglur í samstarfsverkefninu með Berlingske um að Páll skipstjóri hefði hótað Helga Seljan fréttamanni RÚV og öðrum blaðamönnum. Siðanefnd fagfélagsins leggur blessun sína yfir hryðjuverk á siðareglun blaðamanna.
Niðurstaða siðanefndar Blaðamannafélagsins er að Helgi Seljan hafi verið í fullum rétti að bera ósannindi á skipstjórann. RÚV var í fullum rétti að endurbirta ósannindin. RÚV var í fullum rétti að bera ásakanir Helga ekki undir skipstjórann. Þá var RÚV í fullum rétti að neita Páli skipstjóra um leiðréttingu á fréttinni.
Siðanefndin sem kemst að niðurstöðunni er þannig skipuð: Pálmi Jónasson formaður, Friðrik Þór Guðmundsson, Emma Björg Eyjólfsdóttir, Valgerður Anna Jóhannsdóttir og Oddur Ástráðsson.
Með úrskurðinum staðfestir Blaðamannafélag Íslands að blaðamönnum er heimilt að fara fram með vísvitandi ósannindi. Beri blaðamaður fram ásakanir á nafngreindan einstakling er óþarfi að veita þeim ásakaða andmælarétt. Skjóta en ekki spyrja, er afstaða siðanefndarinnar.
Blaðamenn eru duglegir að grafa eigin gröf. Þeir eru jú á ríkislaunum við gröftinn.