Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, var svekktur eftir 5:1-skellinn sem hans lið fékk gegn Víkingi í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. Hann ræddi við mbl.is eftir leik.
„Víkingar eru með frábært lið, á toppnum og meistarar. Þetta voru helvíti ódýr mörk og í raun einstaklingsmistök. Það er rándýrt að hjálpa þeim svona. Það sló okkur út af laginu og við vorum skrefi á eftir. Í seinni hálfleik breyttist það. Þá stigum við meira á þá. Það var miklu meiri leikur,“ sagði hann.
Jakob Franz Pálsson átti erfiðan fyrri hálfleik því hann átti þátt í fyrstu tveimur mörkum Víkingsliðsins er hann gerði sig sekan um mistök.
„Fótboltinn er svona. Ég ræddi við hann og spurði hvernig honum liði. Þetta var þungur hálfleikur fyrir hann og þú ert ekki að gera neinum greiða ef þér líður illa inni á vellinum. Hann vildi keyra þetta áfram í seinni hálfleik. Svona er fótboltinn, shit happens og honum var refsað tvisvar.“
Valsmenn hafa fengið mörg mörk á sig í sumar en Hermann er spenntur fyrir því að sjá Hólmar Örn Eyjólfsson og Markus Nakkim saman í miðri vörninni.
„Það vantaði Hólmar sem hefur verið einn besti leikmaðurinn okkar. Markus kom inn og var frábær í dag. Þetta virðist ætla að líta vel út eftir hlé þegar það verða tveir reynslumiklir hafsentar í liðinu. Það er grunnurinn að því að varnarleikurinn sé góður.
Mér líst stórkostlega á framhaldið. Við getum verið gott fótboltalið þegar allir eru að spila vel. Það þurfa allir að spila vel á móti Víkingum. Sú varð ekki staðreyndin. Þetta er kærkomið hlé til að púsla mönnum aðeins saman. Við bíðum spenntir eftir næsta leik,“ sagði Hermann.