Úrslit sveitarstjórnarkosninganna liggja fyrir um land allt en seinustu tölur bárust laust fyrir klukkan fimm í nótt. Sjálfstæðisflokkurinn fékk langmest fylgi allra flokka í borginni. Fylgi Samfylkingarinnar í Reykjavík er það lægsta frá stofnun flokksins.
Ljóst er að töluverðar breytingar verða á skipan borgarstjórnar á næstu árum, bæði þegar horft er til þeirra fulltrúa sem hana skipa og þegar kemur að myndun meirihluta. Til að mynda eiga Píratar og Flokkur fólksins ekki lengur fulltrúa í borgarstjórn. Á hinn bóginn bæta Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn við sig þremur fulltrúum hvor.
Miklar hræringar í borgarstjórn
Sextán nýir borgarfulltrúar taka sæti í borgarstjórn.
Björn Gíslason og Friðjón R. Friðjónsson, fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, halda ekki áfram. Í þeirra stað koma Bjarni Eggerts Guðjónsson, Brynjar Þór Níelsson, Rúnar Freyr Gíslason, Guðný María Jóhannsdóttir, Albert Guðmundsson, Sigrún Ásta Einarsdóttir og Bjarni Fritzson.
Í flokki Samfylkingarinnar koma Pétur H. Marteinsson, Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir og Stein Olav Romslö ný inn. Þau taka við af Söru Björgu Sigurðardóttur, Sabine Leskopf, Dóru Björt Guðjónsdóttur og Hjálmari Sveinssyni.
Björg Magnúsdóttir og Róbert Ragnarsson taka við af Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur í flokki Viðreisnar.
Ari Edwald, Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir og Lárus Blöndal Sigurðsson koma öll ný inn sem fulltrúar Miðflokksins.
Sanna Magdalena Mörtudóttir og Líf Magneudóttir halda báðar sæti sínu í borgarstjórn, þó undir formerkjum Vinstrisins.
Þá heldur Einar Þorsteinsson einnig sæti sínu sem fulltrúi Framsóknarflokksins en Aðalsteinn Haukur Sverrisson, Árelía Eydís Guðmundsdóttir og Magnea Gná Jóhannsdóttir verða ekki áfram.
Píratar ná ekki inn borgarfulltrúa og því sitja Alexandra Briem og Magnús Davíð Norðdahl ekki áfram. Það sama á við um Mörtu Guðjónsdóttur og Kjartan Magnússon, óháða borgarfulltrúa sem sögðu skilið við Sjálfstæðisflokkinn og gengu til liðs við Miðflokkinn fyrr í vetur.
Helga Þórðardóttir borgarfulltrúi Flokks fólksins og Andrea Helgadóttir borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins halda heldur ekki áfram.