Sextán á Vestfjörðum með pyngjuna í góðum holdum

Einar Valur og Jón Þorgeir hafa það fínt
Mynd: Samsett
Heimildin hefur tekið saman sinn árlega Hátekjulista en á honum er að finna tekjuhæstu 1% Íslendinga fundin með ítarlegri leit ritstjórnar. Auk þess tekur hann ekki eingöngu mið af launatekjum heldur einnig fjármagnstekjum, svo sem arðgreiðslum til eigenda fyrirtækja, en oft eru launatekjur lítill hluti raunverulegra tekna.
Meðal þess sem Heimildin hefur gert er að birta tölurnar og nöfnin eftir sveitarfélögunum.
Magnús Hauksson er í 1. sæti á Vestfjörðum en hann er í 159. sæti á heildarlistanum. Ásta Björk Benónýsdóttir er í 16. sæti á Vestfjörðum og skilar það henni í sæti 1436 á heildarlistanum.