Í kvöldfréttum Sýnar mátti sjá lendinguna en bæði Loftleiðir og Flugfélag Íslands höfðu slíkar vélar í þjónustu sinni á árunum upp úr 1960 áður en þotuöldin gekk í garð. Þær lögðu grunninn að mestu velgengnisárum Loftleiða og gerðu Norður-Atlantshafsflug félagsins að raunhæfum valkosti í alþjóðlegri samkeppni á flugleiðum milli Evrópu og Ameríku.
Fraktflugfélagið Iscargo gerði slíkar vélar út frá Reykjavíkurflugvelli á árunum 1972 til 1982. Jafnan þótti mikið ævintýri að sjá þær lenda og taka á loft.
Þessi tiltekna flugvél er safngripur í eigu austurrísks félags um varðveislu sögufrægra flugvéla, The Flying Bulls, og er verið að ferja hana yfir Norður-Atlantshaf til þátttöku í Oshkosh-flughátíðinni í Wisconsin í Bandaríkjunum.
Mikill áhugi ríkti meðal íslenskra flugáhugamanna vegna komu vélarinnar. Pétur P. Johnson flugsögusérfræðingur telur að yfir þrír áratugir séu frá því vél þessarar gerðar lenti síðast á Reykjavíkurflugvelli. Hann telur að það hafi verið upp úr 1990 sem sexa var síðast í Reykjavík.
Fyrir þá sem hafa áhuga á að fylgjast með flugtakinu má geta þess að stefnt er að því að flugvélin haldi för sinni áfram vestur um haf klukkan tíu í fyrramálið.
Hér má sjá lendinguna: