Lögreglan á Suðurlandi hefur óskað eftir hjálp frá þyrlu Landhelgisgæslunnar vegna rútuslyss í Suðursveit. RÚV greindi frá. Rútan valt. Tíu voru í rútunni og sex eru slasaðir samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. „Lögreglan hefur óskað eftir aðstoð frá þyrlu Landhelgisgæslunnar. Björgunarsveitir á Suðurlandi eru í viðbragðsstöðu,“ segir í fréttinni. Uppfært kl. 11:20:
Sex slasaðir eftir að rúta valt í Suðursveit