Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók sex í miðbæ Reykjavíkur í dag vegna líkamsárásar gegn einum manni. Sá var fluttur með sjúkrabíl á bráðamóttöku til frekari aðhlynningar, nokkuð meiddur, að því er segir í dagbók lögreglu.
Einn hinna handteknu var vistaður í fangaklefa en látinn laus að skýrslutöku lokinni.
Þá fékk lögreglan tilkynningu vegna manns sem var að gefa börnum bjór í strætó. Hann fannst ekki eftir leit lögreglu.