Setning Þjóðhátíðar fór fram í gær og segist lögreglan halda úti öflugu fíkniefnaeftirliti líkt og á fyrri hátíðum.
Einnig sótti þyrla Landhelgisgæslunnar einstakling sem hafði fallið í fjallendi í Vestmannaeyjum og eru tildrög slyssins í rannsókn, að sögn lögreglu.
Skiptu sér af börnum fyrir norðan
Að sögn lögreglunnar á Norðurlandi eystra komu upp tvö tilfelli þar sem höfð voru afskipti af börnum sökum áfengisneyslu eftir klukkan 18 í gær. Þá voru einstaklingar „aðstoðaðir vegna ölvunarástands“ í þrígang.
Þar til viðbótar hafi þrjú umferðarlagabrot verið skráð en ekkert tilfelli komið upp þar sem grunur sé um akstur undir áhrifum vímugjafa.
Engin mál komu inn á borð lögreglunnar á Norðurlandi eystra vegna óláta eða slagsmála og enginn þurfti að gista í fangageymslu. Fjölskylduhátíðin Ein með öllu fer nú fram á Akureyri og Síldarævintýrið á Siglufirði,
Fréttin hefur verið uppfærð.