Cosplay-iðkandinn Blær Þorfinns segir að ákveðin frelsun felist í því að klæða sig í búning og skipta stundarkorn um persónuleika. Fyrir suma sé það ákveðið feimnismál að klæðast búning á almannafæri en fyrir aðra er það leið til að verða opnari.
Cosplay er áhugamál og ákveðið listform þar sem fólk klæðist búningum sem gjarnan eru innblásnir af bókum, bíómyndum og þáttum, bæði leiknum og teiknuðum, og japanskri dægurmenningu. Blær fór fyrst að stunda cosplay 13 ára að aldri og hefur því verið hluti af íslenska cosplay-samfélaginu í 8 ár.
Fá að vera einhver annar í smá stund
„Það hjálpaði mér alveg rosalega mikið þegar ég byrjaði að fara í búning og fara út,“ segir Blær sem líkir því við að setja upp grímu og verða að annarri manneskju. „Ég hef heyrt margar sögur af fólki sem finnur cosplay og dýrkar það. Það bara hjálpaði lífi þeirra rosa mikið að fá að vera einhver annar í smá stund.“
Blær segir að cosplay einskorðist ekki við ungt fólk heldur séu iðkendur á öllum aldri. „Maður sér líka foreldra sem eru aðdáendur, setja litlu krakkana sína í svona lítinn búning,“ útskýrir hán. „Ég hef séð fólk á sjötugsaldri vera að klæða sig upp og hafa gaman.
Nánar er sagt frá cosplay á Íslandi í lengra viðtali við Blæ í Dagmálum.