Nefnd palestínskra sérfræðinga á vegum Friðarráðs Bandaríkjaforseta segist tilbúin að taka við stjórn á Gaza af Hamas-samtökunum. Samtökin hafa stjórnað þar í tæp tuttugu ár.
Fyrr í dag tilkynntu Hamas-samtökin að þau hefðu leyst upp stjórnarnefnd sína á Gaza. Ákvörðunin markar tímamót fyrir samtökin, sem stjórnað hafa Gaza frá árinu 2007.
Yfirmaður neyðarstjórnarinnar, Mohammed al-Farra, hefur sagt af sér. Hann segist hafa ákveðið að leggja nefndina niður til að greiða fyrir stjórnkerfisbreytingum.
Þjóðarnefnd um stjórn Gaza tekur við stjórnartaumunum af Hamas-samtökunum. Hún var stofnuð af Friðarráðinu sem Donald Trump Bandaríkjaforseti kom á fót þegar hann hafði milligöngu um vopnahlé milli Hamas og Ísraels í október í fyrra
Al-Farrah segir við fjölmiðla að ísraelsk stjórnvöld hafi fram til þessa skýlt sér á bak við andstöðu við stjórnkerfi Gaza til að réttlæta áframhaldandi hernað og yfirráð. Nú eigi það ekki lengur við.
Ali Shaath, formaður Þjóðarnefndarinnar, segir fulltrúa hennar reiðubúna til að taka við stjórn um leið og aðstæður leyfa. Til þess að nefndin nái árangri segir hann mikilvægt að aðeins ein stjórn fari með völd og að ein lög gildi. Þá verði öll vopn sameinuð undir stjórn Þjóðarnefndarinnar, líkt og kveðið er á um í friðaráætlun fyrir Gaza og ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.
Annar áfangi vopnahlésins átti að fela í sér afvopnun Hamas og brottflutning Ísraelsmanna af Gaza. Þess í stað hefur Ísraelsher aukið umsvif sín á Gaza undanfarna mánuði og ræður nú yfir nærri 70% svæðisins. Hamas hafa krafist þess að stofnað verði til palestínskrar borgaralegrar stjórnar áður en samtökin láta vopnabúr sitt af hendi.