Selurinn Njáll, eða Neil the Seal eins og hann er kallaður í heimalandi sínu, gerir sig heimkominn ár hvert í bænum Hobart á eyjunni Tasmaníu suður af Ástralíu. Selurinn dvelur í bænum meðan á feldskiptum stendur og hefur hann vakið töluverða athygli fyrir atferli sitt.
Það mætti jafnvel segja að hann hagi sér líkt og ódæll unglingur.
Neil hefur ítrekað valdið umferðarteppum, lokað vegum og brotið girðingar og staura. Þrátt fyrir þennan usla eru heimamenn hrifnir af selnum en hann hefur dvalið í bænum ár hvert frá 2022.
Umferðarkeilur og staurar eru í miklu uppáhaldi hjá selnum en hann jafnar iðulega staura við jörðu með því að hlamma sér niður á þá. Neil sést einnig oft á leik við keiluurnar.
Líklega villst til Tasmaníu og er einmanna
Neil er 5 ára kóngasæfíll og vegur um eitt tonn. Vísindamenn telja að á næstu árum eigi selurinn eftir að stækka töluvert. Fílselir eru fullþroska um 8-10 ára aldur og geta þeir vegið allt að tvö tonn. Kóngasæfílar halda til í Suðurhöfum og er því líklegt að Neil hafi hreinlega villst til Tasmaníu.
Ungir sæfílar ganga á land um það bil einu sinni á ári og á þeim tíma hitta þeir oft aðra unga brimla sem þeir glíma við. Með glímubrögðunum tileinka þeir sér ákveðna bardagahegðun sem þeir geta svo nýtt sér á fullorðinsárum.
Dr. Clive McMahon, sjávarvistfræðingur, segir í viðtali við Guardian að Neil sé að öllum líkindum heldur einmanna þar sem hann er ekki í samneyti við aðra brimla. Því æfi hann bardagahegðun sína á því sem verður á vegi hans, til dæmis staurum.
„Oft þegar maður sér hann sofa er hann klesstur upp við girðingu, og það er líklega hluti af því að hann vill finna að það sé eitthvað annað þarna,“ segir McMahon.
Engin bein hætta stafar af Neil þó hann planti sér gjarnar á götur og nuddi sér við bíla. Íbúar í Hobart hafa tekið honum fagnandi og lært að umgangast hann.