Aðeins tvennt er á dagskrá þingfundar í dag, þess fyrsta sem haldinn er eftir tveggja vikna fundahlé vegna sveitarstjórnarkosninga.
Fyrst er óundirbúinn fyrirspurnatími. Stóra málið er þó seinni umræða um þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-viðræður. Fyrri umræðan fór fram á þremur dögum í mars og stóð yfir í um 22 klukkustundir.
Meirihluti utanríkismálanefndar lagði til að spurningunni yrði breytt. Minnihlutinn mótmælti því að málið væri tekið út úr nefnd og sent til umræðu í þingsal.
Þingfundur hefst klukkan þrjú.