Undanfarið hafa sveitarfélög landsins verið í óðaönn að ganga frá ráðningu á sveitar- og bæjarstjórum og í einu tilfelli borgarstjóra til næstu fjögurra ára. Launakjör þeirra eru hins vegar misjöfn og hefur sitt sýnst hverjum þegar slíkt ber á góma. Í sumum bæjarstjórnum hefur minnihlutinn kvartað og sagt meirihlutann hafa samþykkt of há laun til handa bæjarstjórum. Meðal þeirra er Garðabær þar sem Almar Guðmundsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins, hefur verið endurráðinn bæjarstjóri en minnihlutinn segir ljóst að honum séu skömmtuð of rífleg kjör.
Segja Almar vera með of há laun - „Bæjarstjóri Garðabæjar ber ábyrgð“