Kristján Már Unnarsson fréttamaður Sýnar ræddi við Eddu Brynleifsdóttur, einn stjórnarmeðlima Rabarbarafélags Íslands, um markmið hátíðarinnar.
„Upphefja plöntuna vegna þess að þetta er snilldarjurt á allan hátt. Hún hefur bæði lækningamátt og svo er hægt að nota hana í endalausan mat og rétti,“ segir Edda en hún segir að á Íslandi séu um tuttugu yrki rabarbara en að á safni í Englandi megi finna fjögurhundruð.
Hún segir bæinn ekki hafa sérstöðu hvað varðar rabarbarann frekar en aðrir en að gamli bæjarhlutinn hafi allur verið morandi í rabarbara.
„Vegna þess að þetta var hálfgerð kreppujurt á sínum tíma og það þótti gott að hafa rabarbara í görðum vegna þess að kannski að vori til þegar það var lítið orðið um mat þá var alltaf hægt að nýta rabarbarann í alls konar,“ segir hún og sýndi Kristjáni því næst ríflega hundrað ára gamalt rabarbarabeð sem liggur við gömlu kirkjuna í bænum og er friðað.