Lögreglumaður lést og annar slasaðist í skotárás í Montreal í Kanada í dag þegar vopnaður maður hóf skothríð á fjölförnum stað í hverfinu Côte-des-Neiges. Árásarmaðurinn var sjálfur skotinn til bana á vettvangi.
Atvikið hefur vakið mikinn óhug, ekki síst þar sem myndband sem nú gengur á samfélagsmiðlum virðist sýna árásarmann í herklæðum skjóta að lögreglu á götu úti. Samkvæmt upplýsingum frá yfirvöldum féll lögreglumaður í skotárásinni og annar særðist.
Á sama tíma lést einnig óbreyttur borgari í skothríðinni. Samkvæmt fyrstu frásögnum virðist sú manneskja hafa orðið fyrir skoti í ringulreiðinni þegar lögregla brást við árásinni. Myndbandið hér að neðan sýnir þessa skelfilegu atburðarrás.
HORROR: Female Montreal police officer appears to have allegedly shot and killed a civilian during shootout with gunman. https://t.co/9HCBMvvgZr pic.twitter.com/6KJve5rZzl
— Breaking911 (@Breaking911) June 22, 2026
Fyrsti lögreglumaðurinn sem fellur í Montreal í 24 ár
Lögreglustjórinn í Montreal, Fady Dagher, sagði á blaðamannafundi að atvikið væri „martröð“ og varð sýnilega miður sín þegar hann staðfesti dauðsfall lögreglumannsins.
Um er að ræða fyrsta skiptið í nær aldarfjórðung sem lögreglumaður í Montreal fellur við skyldustörf.
Skotárásin hófst um klukkan 11:30 að staðartíma eftir að vitni sá byssuhlaup stingast út um glugga og heyrði skothríð. Lögregla var kölluð á vettvang en innan skamms brutust út átök sem enduðu með þremur látnum.
Hvati enn óljós
Yfirvöld segja að árásarmaðurinn hafi líklega verið einn að verki og að hann hafi notað langdrægt skotvopn. Enn liggur ekki fyrir hvað vakti fyrir honum.
Öryggisráðherra Quebec, Ian Lafrenière, sagði að rannsókn væri á frumstigi og að engar staðfestar upplýsingar væru um hvata eða möguleg tengsl við öfgahópa.
Svæðið var lokað af í nokkrar klukkustundir, umferð stöðvuð og neðanjarðarlestir teknar úr notkun meðan leit stóð yfir.
Borgarstjórinn í Montreal, Soraya Martinez Ferrada, og forsætisráðherra Quebec, Christine Fréchette, hafa bæði fordæmt árásina og sent fjölskyldum hinna látnu samúðarkveðjur.
Hér fyrir neðan má sjá færslu sem sýnir samansafn af myndbrotum úr aðgerðum lögreglunnar í dag.
Full Video Compilation of All Footage / Clips
from the Montréal Shooting in front of the
Hilton / Hampton Homewood Suites at
985 Boul. Saint-Laurent, Montréal, QC H2Z 1J4
with what appear to show at least one civilian
killed by mistake and an officer killed by
the suspect pic.twitter.com/JwqXxFaEFS— Alex Malone (@NeoconDon) June 22, 2026