Í kvöldfréttum Sýnar mátti sjá myndir Kringvarps Færeyja frá Þórshöfn í dag. Rauður dregill hafði verið lagður út og íslenski fáninn dreginn að húni á Þinganesi, aðsetri landsstjórnarinnar, þegar forseti Íslands og fylgdarlið renndu í hlað. Halla sagðist hafa fundið fyrir því við komuna til Færeyja að hún væri „komin heim“ og sagðist hún vona að Færeyingum og Íslendingum liði sem svo að þeir væru heima hvor hjá öðrum.
„Og að við getum stundað viðskipti, staðið saman gegn áskorunum og nýtt tækifæri, búið til velsæld byggða á heilbrigðu hafi og góðum viðskiptaháttum,“ sagði hún og bætti við að „ef þessi vinabönd eru traust eru okkur allir vegir færir“.
Í tilkynningu frá skrifstofu forseta Íslands sagði að markmið heimsóknarinnar væri að styrkja náin tengsl Íslands og Færeyja og vinna að frekara samstarfi, meðal annars á sviði sjávarútvegs, orkumála, nýsköpunar og menningarmála.
Meðal þess sem væri á dagskránni væri ferð um Eysturoy og Borðoy, viðskiptaþing íslenskra og færeyskra fyrirtækja, heimsókn á vinnustofu myndlistarmannsins Edwards Fuglø og gagnkvæmnismóttaka forsetahjónanna í Norræna húsinu í Þórshöfn.