Hjónin, Greta Salóme Stefánsdóttir, tónlistarkona og Elvar Þór Karlsson, forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans, eiga von á sínu þriðja barni í nóvember. Þetta tilkynna þau í hjartnæmu myndbandi á samfélagsmiðlum. Fyrir eiga þau synina Bjart Elí, sem fæddist í nóvember 2022 og Sólmund, sem fæddist í október 2024. Það er því ljóst að lok árs er tími barneigna hjá hjónunum.Fókus óskar hjónunum og stóru bræðrunum hjartanlega til hamingju.
Greta Salóme á von á þriðja barninu