Hann var einn áhrifamesti plötuútgefandi Bandaríkjanna, fyrst hjá Columbia Records og síðar sem forstjóri Arista Records og samdi við og mótaði feril listamanna á borð við Arethu Franklin, Bruce Springsteen, Billy Joel, Whitney Houston, Santana, Janis Joplin, Christinu Aguilera, Aliciu Keys og fleiri.
Í frétt breska ríkisútvarpsins (BBC) er að haft eftir fjölskyldu hans að Davis, sem fæddist í Brooklyn þann 4. apríl 1932 og ólst upp í Crown Heights-hverfinu í New York, hafi undanfarið dvalið á sjúkrahúsi vegna öndunarfæravandamála og hafi verið kominn aftur heim, á Manhattan-eyju í New York, og verið að jafna sig þegar hann lést.
„Í augum heimsins var faðir okkar goðsagnakenndur tónlistarmaður þar sem framtíðarsýn, innsæi og stöðug leit að afburðum mótuðu tónlistina í lífi ótal margra,“ segir í yfirlýsingu frá þeim.
„Fyrir fjölskyldu sína var Clive, pabbi okkar og afi, stöðugur klettur í miðju lífi okkar, uppspretta visku, styrks, hvatningar og skilyrðislausrar ástar,“ segir þar einnig.
Davis útskrifaðist úr lagadeild Harvard og hafði enga þekkingu á tónlistariðnaðinum þegar hann hóf störf hjá Columbia Records 28 ára gamall en þá hóf hann að mæta á kvöldnámskeið til að fræða sig um höfundarréttarlög, samninga og málaferli.
Innsæið borgað sig aftur
Árið 1983 samdi Davis svo við söngkonuna Whitney Houston, þegar hún var aðeins 19 ára, og eyddi síðan árum saman í að leita að upptökustjórum og lagahöfundum sem gætu nýtt rödd hennar sem best.
Þegar frumraunarplata hennar kom loks út árið 1985 innihélt hún þrjár smáskífur sem komust allar í fyrsta sæti í Bandaríkjunum – Saving All My Love for You, How Will I Know og Greatest Love of All. Í frétt BBC er haft eftir fulltrúum Sony en þar kemur fram að hún hafi selst í meira en 25 milljónum eintaka um allan heim.
Innsæi hans borgaði sig aftur þegar Houston gaf út ábreiðu sína af lagi Dolly Parton, I Will Always Love You.
Davis krafðist þess að lagið byrjaði á 40 sekúndna a capella-kafla, gegn vilja upptökustjórans David Foster, sem óttaðist að sú ákvörðun myndi skaða möguleika þess á útvarpsspilun. Það varð í kjölfarið söluhæsta lag hennar, sat í 14 vikur á toppi bandaríska smáskífulistans og í 10 vikur til viðbótar á breska listanum.
Stanley Tucci, sem er einna þekktastur fyrir hlutverk sín í kvikmyndunum um Hungurleikana, mun leika Davis í væntanlegri ævisögumynd um Houston, I Wanna Dance With Somebody.