Stefán Haukur er með B.M. gráðu í klassískum gítarleik og meistaragráðu í listkennslu frá Listaháskóla Íslands auk diplóma í stjórnun menntastofnana frá Háskóla Íslands. Pamela er með meistaragráðu í þverflautuleik frá Listaháskólanum í Flórens og Listaháskólanum í Campobasso og meistaragráðu í kammertónlist frá Listaháskólanum í Róm. Bæði eru þau með mikla og víðtæka reynslu af kennslu og stjórnun.
„Við óskum nýjum skólastjórnendum innilega velfarnaðar í nýjum störfum og hlökkum til að sjá þá fersku vinda sem þau blása í segl tónlistarskólans,“ segir Kjartan Björnsson, formaður stjórnar Tónlistarskóla Árnesinga, en hann og Stefán Haukur, nýr skólastjóri, skrifuðu undir ráðningarsamninginn í dag. Í skólanum eru 535 nemendur og 40 starfsmenn en höfuðstöðvar hans eru á Selfossi.