Hinn skeleggi blaðamaður Samstöðvarinnar Björn Þorláksson var harðlega gagnrýndur eftir ummæli hans um íþróttafréttamenn í samhengi við árangur golfarans Gunnlaugs Árna Sveinssonar á US Open. „Ekki að spyrja að íþróttapressunni íslensku. Sú kann að veita aðhald! Ég rak augun í fyrirsögnina „Frábær árangur“. Nokkuð peppaður las ég það sem á eftir kom. En sagði þá af Íslendingi sem lenti í 155. sæti af 156 á golfmóti,“ sagði Björn léttur á Facebook.
Heift eftir brandara Björns: „Ættir að vita betur en að þyrla upp ryki“