Bifhjólamaðurinn sem lést í umferðarslysi austan Víkur í Mýrdal á laugardag hét Bergur Einarsson. Hann var 55 ára skipstjóri, búsettur á Fáskrúðsfirði. Fjölskyldan greinir frá andlátinu í tilkynningu.
Lögreglan á Suðurlandi og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins sem varð þegar bifhjól og bíll, sem ekið var úr gagnstæðum áttum, skullu saman.