„Það má segja að frá efnahagshruninu árið 2008 hafi verið óstöðugleiki í breskum stjórnmálum sem kristallaðist í Brexit-kosningunni fyrir réttum áratug,“ sagði Kristján Guy Burgess alþjóðastjórnmálafræðingur í fréttum RÚV í kvöld. Næsti forsætisráðherra verður sá sjöundi á rúmum tíu árum en 50 ár tók að komast í gegnum næstu sjö þar á undan.
Andy Burnham þykir líklegastur til að taka við af Keir Starmer sem forsætisráðherra Bretlands og leiðtogi Verkamannaflokksins. Kristján Guy telur ólíklegt að hann fái mótframboð þar sem helstu keppinautar hans hafa sagt að þeir ætli ekki að keppa við hann.
Í myndskeiðinu má sjá umfjöllun í fréttum RÚV um afsögn Starmers í morgun.