Segir frétt RÚV um Francescu Albanese „ekki boðlega“

Auður Jónsdóttir, rithöfundur og blaðakona, gagnrýnir harðlega fréttaflutning RÚV um Francesca Albanese, sérstakan sendifulltrúa Sameinuðu þjóðirnar í málefnum Palestínu. Í fréttinni er fjallað um það að Albanese sæti ekki lengur þvingunaraðgerðum Bandaríkjastjórnar en hún hefur verið afar gagnrýnin á yfirvöld í Ísrael.
Í Facebook-færslu segir Auður fréttina vera „furðulega bagalega skrifaða“ og varar við því að framsetning hennar geti ýtt undir upplýsingaóreiðu.
„Þessi frétt er svo furðulega bagalega skrifuð og hún er svo gloppótt að það er beinlínis varhugavert, ef ekki hættulegt,“ skrifar Auður og heldur áfram.
„Í stuttri frétt um stórt og grafalvarlegt mál er tvívegis talað um meint gyðingahatur Albanese, sérstaks sendifulltrúa Sameinuðu þjóðanna í málefnum Palestínu – sem er algjör fjarstæða – og aðeins vitnaði í ummæli Marco Rubio um hana, þar sem hann ásakar hana um það og nefnt að það geri Ísrael líka,“ skrifar Auður bætir hún við: „Þetta er ekki boðlegt á ríkismiðli.“
Hún segir jafnframt að fréttin skorti mikilvægt samhengi og að slíkur fréttaflutningur geti haft alvarlegar afleiðingar.
„Frétt í skrumskældu samhengi kyndir undir upplýsingaóreiðu. Þetta er ekki boðlegt á ríkismiðli,“ segir hún.
Auður bendir einnig á að bandarísk stjórnvöld hafi ekki fallið frá fyrirætlunum sínum gagnvart Albanese þrátt fyrir nýlegan dómsúrskurð um afnám viðskiptaþvingana.
„Bandaríkin neita því að afnám viðskiptaþvinganna gegn henni sé breyting á stefnu stjórnvalda. Utanríkisráðuneytið tilkynnti að þetta hefði einungis verið gert vegna dómsúrskurðarins og bætti vi' „Ríkisstjórnin hefur áfrýjað úrskurði dómstólsins,““ skrifar Auður.
Hún vitnar einnig í yfirlýsingu bandaríska utanríkisráðuneytisins þar sem fram kemur að stjórnvöld hyggist setja Albanese aftur á lista yfir sérstaklega tilnefnda ríkisborgara ef úrskurðurinn verði felldur úr gildi eða honum frestað.