Ming Ting Mancel, sem ákærð er fyrir að verða dóttur sinni að bana ásamt manni sínum á Edition-hótelinu á síðasta ári, segir að dóttir sín hafi tekið virkan þátt í dauða sínum. Hún hafi sagt við foreldra sína að hún myndi vilja deyja fyrst.
Aðalmeðferð í Edition-málinu hófst í morgun þar sem Mancel svarar til saka. Hún var fyrst í vitnastúku og hefur vitnaleiðsla hennar verið nokkuð löng og ítarleg. Hún hófst stuttu eftir klukkan 10:00 í dag og stendur hún enn þegar þessi frétt er skrifuð. Líklegt er að vitnaleiðslan standi vel áfram inn í daginn.
Til stendur að vitni komi fyrir dóminn eftir það en ólíklegt þykir að það náist að taka skýrslu af þeim öllum í dag. Málinu verður framhaldið á þriðjudag eftir helgi.
Mancel er ein til frásagnar af því sem gerðist þar sem bæði dóttir hennar og maður hennar létust þetta kvöld.
Mancel og eiginmaður hennar eru sögð hafa banað dóttur sinni og Mancel er ákærð fyrir það og því snérist skýrslutakan að aðstæðum á hótelherberginu þegar þetta átti sér stað og þá hvort dóttirin hafi verið virkur þátttakandi og vitað hvað stæði til.
Í ákæru sem fréttastofa hefur undir höndum er þeim gefið að sök að hafa haldið henni fastri með því að grípa um hægri upphandlegg hennar og brugðið snöru um háls hennar og þrengt að öndunarvegi hennar í drjúga stund. Af þessu á hún að hafa hlotið urmul punktblæðinga á hálsi og í andliti. Þá eiga þau einnig að hafa stungið hana tvisvar með hnífi í brjóstkassann þar sem önnur stungan gekk inn að hjartanu. Hún lést síðar vegna lungnaþembu og rofs í hægri slegli hjartans sem leiddi til blæðingar og blóðfyllu í gollurhúsi hjartans.
Hafði ekki séð fyrir sér að vera stungin
Mancel segir að dóttir sín hafi viljað deyja en að hún hafi ekki vitað að hún yrði stungin fyrr en undir það síðasta.
Þau hafi rætt aðferðir lítillega áður en stungan átti sér stað, bæði áður en þau komu til Íslands og meðan á dvölinni stóð. Dóttirin hafi þó lítið viljað vita. Þegar Emeric, maður Mancel, á að hafa tjáð dóttur sinni að hann hygðist stinga hana í hjartað á hún að hafa brugðist lítillega við en hafi þó samþykkt.
Stungan átti sér stað á baðherbergi hótelherbergisins að sögn Mancel. Hún segist ekki hafa horft á þegar maður hennar stakk dóttur sína en hafi haldið í höndina á henni. Dóttir hennar á þá ekki hafa kveinkað sér.
Eftir að hún var stungin færðu þau dóttur sína á rúm í herberginu þar sem hún lagðist fyrir.
Gáfu henni svefnlyf og áfengi
Mancel segir að dóttir sín hafi lifað í einhverja klukkutíma frá því hún var fyrst stungin á baðherberginu. Á þeim tíma hafi hún kveinkað sér og Mancel og maður hennar því gefið henni áfengi og svefnlyf.
Aðrar aðferðir til umræðu
Mancel var spurð hvort ekki hefði verið rætt um aðrar aðferðir til þess að fremja verknaðinn og hún sagði að hnífstunga í hjartað hefði verið það sem þau ákváðu að lokum.
Þau hefðu velt fyrir sér meðal annars hvort þau gætu kastað sér fram af brú eða tekið eitur. Þar sem þau hefðu verið á Íslandi að sumri til hefðu þau talið að ekki væri
Þar sem þau voru með svefnlyf meðferðis spurðu bæði ákærandi og dómari hvort ekki hefði mátt beita þeim. Mancel sagði við því að umrædd svefnlyf hefðu verið keypt án lyfseðils á Írlandi. Þau væru því ekki sterk og hún og maður hennar hafi talið að þau myndu ekki duga til þess að bana dóttur þeirra.
Hún hafi síðar reynt að bana sjálfri sér en henni hafi ekki tekist það. Stuttu eftir það hafi hún haft samband við móttökuna á hótelinu og verið handtekin af lögreglu stuttu síðar.