Tómas Guðbjartsson læknir segir alvarlegar rangfærslur um málsatvik og mjög ærumeiðandi fullyrðingar um persónu hans, meintar hvatir og ásetning að finna í nýlegum dómi héraðsdóms í máli fjölskyldu Andemariams Beyene gegn íslenska ríkinu.
Ríkið var á dögunum dæmt skaðabótaskylt vegna þess tjóns sem fjölskylda Andemariams varð fyrir vegna andláts hans eftir plastbarkaígræðslu sem hann gekkst undir á Karolinska-sjúkrahúsinu í Svíþjóð.
Fékk ekki að bera vitni
Í tilkynningu sem Tómas sendi frá sér í dag segir að í rökstuðningi dómsins sé alvarlega snúið út úr málavöxtum með þeim hætti að atvikalýsing sé í engu samræmi við það sem raunverulega gerðist í málinu. Það hefði án efa mátt leiðrétta hefði verið leitað eftir vitnisburði hans við meðferð málsins.
Sjálfur hefði hann ekki fengið tækifæri til andsvara vegna þess að hann var ekki aðili að dómsmálinu og vissi ekki af því að vitnaleiðslur stæðu yfir. Hvorki lögmaður fjölskyldu Andemariams né íslenska ríkisins óskaði eftir að hann bæri vitni, sem Tómasi þykir sæta furðu.
Einhliða ákvörðun Karolinska
„Í þessu sambandi er mikilvægt að það komi fram að tilvísun sjúklingsins til Karolinska sjúkrahússins var vegna geislameðferðar og gerð í nánu samstarfi við sérfræðinga krabbameinsdeildar Landspítala, í samræmi við álit sérfræðinga Massachusetts General Hospital um líknandi meðferð,“ skrifar Tómas.
Hann segir ákvörðunina að láta Andemariam gangast undir plastbarkaaðgerð hafa verið tekna einhliða af Karolinska sjúkrahúsinu. Ekkert samráð hafi verið haft við hann eða aðra lækna Landspítalans.
Tómas segir engan vafa leika á því að mistök voru gerð við læknismeðferð Andemariams.
„Niðurstaða rannsóknarskýrslunnar er hins vegar skýr. Það var á ábyrgð lækna Karolinska háskólasjúkrahússins að Andemariam var boðin þátttaka í tilraunameðferð og þeir læknar sem þar störfuðu báru ábyrgð á öllum ákvörðunum um skipulagningu og útfærslu aðgerðarinnar.
Jafnframt var það niðurstaða skýrslunnar að íslenskir læknar hefðu einfaldlega ekki verið hafðir með í ráðum um þessi atriði og að læknirinn Macchiarini hefði blekkt mig og fleiri í þessu ferli. “
Telur að dómnum verði áfrýjað
Í ljósi rangra fullyrðinga er að mati Tómasar óhjákvæmilegt að dómi héraðsdóms verði áfrýjað. Taka verður þó fram að vegna þess að Tómas er ekki aðili að máli er það ekki í höndum hans að áfrýja dómnum.
„Andemariam Beyene var ekki aðeins sjúklingur minn heldur einnig vinur. Ég gerði allt sem ég gat til að hjálpa honum og fjölskyldu hans á þessum tíma. Hugur minn er hjá fjölskyldu Andemariam og ég styð þau öll heils hugar í að leita réttar síns í þessu máli og óska þeim alls hins besta,“ skrifar Tómas að lokum.